Spursmál
Ritstjórn Morgunblaðsins
161 episodes
Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is
More about the show
Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14.
Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum á mbl.is.
Episodes page 1 of 4
-
#147. - Veifa byssum á götum Reykjavíkur
Um tuttugu glæpahópar, sem flestir hafa rík tengsl við útlönd eru starfræktir hér. Vopnaútköllum lögreglu hefur fjölgað og tilteknir hópar innflytjenda hika ekki við að veifa skotvopnum á götum úti. Þetta er meðal…
-
#146. - Jón Gnarr leysir frá skjóðunni
Hvað gerðist að tjaldabaki í þingflokki Viðreisnar í aðdraganda þess að Jón Gnarr sagði skilið við hópinn? Gengið verður á þingmanninn í Spursmálum.Þá er einnig rætt við tvo varaformenn, Snorra Másson frá Miðflokki og…
-
#145. - Skattaóð ríkisstjórn, ömurlegt leikrit og stýrivextir
Farið verður yfir fréttir vikunnar með fjölmiðlakonunni Elísabetu Ingu Sigurðardóttur og Hallmundi Albertssyni lögmanni. Elísabet hefur setið undir árásum Helga Magnússonar og Ólafs Arnarson í nafnlausum skrifum þeirra…
-
#144. - Vilja bera klæði á vopnin í ASÍ
Tveir bjóða sig fram til embættis forseta Alþýðusambands Íslands nú í mánuðinum en það fagnar 110 ára afmæli um þessar mundir. Þeir telja sig geta borið klæði á vopnin í erjum innan hreyfingarinnar. Þetta eru þeir…
-
#143. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í
Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 gerir ráð fyrir tæplega 1.700 milljarða útgjöldum ríkissjóðs á komandi ári. Allt stefnir í hörð átök í þinginu um þessi viðamiklu og stefnumarkandi lög. Af því tilefni mæta þeir í…
-
#142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu
Grípa þarf til enn frekari aðhaldsaðgerða hjá Reykjavíkurborg að sögn Hildar Björnsdóttur borgarstjóra sem er gestur Spursmála að þessu sinni. Hallareksturinn nam 4,6 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi. Í liðinni viku…
-
#141. - Uppgjörið
Meirihluti kjósenda hafnaði því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Að baki er löng og ströng barátta þar sem andstæðar fylkingar bárust á banaspjótum. En hver er staðan að átökum loknum? Þessu…
-
#140. - Titringur á lokametrum baráttunnar
Nú er innan við sólarhringur í að kjörstaðir opni um allt land og það styttist óðum í að úrslit fáist í einu stærsta pólitíska þrætumáli síðari ára á Íslandi. En hver verður niðurstaðan? Þeirri spurningu munu þau…
-
#139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið
Hilmar Veigar Pétursson stýrir Fenris Creations, áður CCP. Hann var sannfærður um að Ísland ætti að ganga í ESB. Nú hefur hann skipt um skoðun. Hann lýsir ástæðum þess í aukaþætti af Spursmálum. Hann flutti ræðu í…
-
#138. - 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands er gestur Stefáns Einars Stefánssonar í beinni útsendingu í Spursmálum. Þar mun hann gera upp baráttuna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst,…
-
#137. - Böðull látinn laus og kjarasamningar í uppnámi
Á sama tíma og þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB stendur fyrir dyrum styttist í að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði verði endurskoðaðir. Hvað ætlar verkalýðshreyfingin að gera? En atvinnurekendur? Þeim spurningum…
-
#136. - Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur?
Engin þjóð hefur stofnað til umsóknar að Evrópusambandinu með þeim hætti sem íslensk stjórnvöld vilja gera nú. Hvað ætlast forystumenn ríkisstjórnarinnar fyrir í málinu?Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og…
-
#135. - Hverju búast menn við í aðildarsamningi?
Hvers væntir Já til að sjá-hreyfingin í aðildarsamningi við Evrópusambandið þegar hann liggur fyrir? Þeirri spurningu verður beint að Jónasi Hagan, fjárfesti og einum stofnenda hreyfingarinnar í Spursmálum dagsins.Þar…
-
#134. - Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi
Dagur B. Eggertsson, alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri segir gríðarlegan velferðarábata felast í því að taka upp evru á Íslandi. Vitnar hann meðal annars til 12 ára gamallar skýrslu í því efni. Ásdís…
-
#133. - Hefði Kerecis orðið til innan Evrópusambandsins?
Guðmundur Fertram Sigurjónsson er meðal gesta Spursmála þennan föstudaginn og ræðir þar af hverju hann leggst gegn aðildarviðræðum við ESB en hann flutti ræðu á fundi samtakanna Áfram Ísland sem haldinn var á Selfossi…
-
#132. - Á ríkið eitt að selja fólki áfengi
Er ríkisvaldið eini aðilinn sem getur með viðunandi staðið að áfengissölu hér á landi? Er það ógn við lýðheilsu og heilbrigðiskerfið ef einkaaðilum er falið það verk? Hér mætast þeir Kári Stefánsson, læknir og…
-
#131. - Kjaftæði um matvæla- og húsnæðisverð
Er dýrt að kaupa í matinn á Íslandi og er húsnæðismarkaðurinn ókleifari múr fyrir ungt fólk hér á landi en annars staðar. Hagfræðingurinn Konráð S. Guðjónsson verður knúinn svara um það í Spursmálum. Hann hefur að…
-
#130. - Innflutningur á glæpaklíkum og spurningin um ESB
Margt hefur dregið til tíðinda í íslensku samfélagi í vikunni sem nú er að líða. Á vettvangi Spursmála verður drepið niður í umræðu um nokkur helstu málin, meðal annars stórt fíkniefnasmygl sem nú tengist beint…
-
#129. - Ungt fólk, stórar spurningar og harðnandi barátta
Baráttan um framtíð Íslands gagnvart Evrópusambandinu færist nú á nýtt stig og í Spursmálum vikunnar er tekist á við stóru spurningarnar sem blasa við þjóðinni fyrir atkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Í þættinum er rætt um…
-
#128. - Þjóðaratkvæði, þjóðargrafreitur og milljarðarnir í boltanum
Í Spursmálum vikunnar fara þingmennirnir Jón Gnarr og Snorri Másson yfir lok þingvetrarins og takast á um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar greinir þá á um hvort verið sé að…
-
#127. - Myndi matvælaverð lækka eða hækka við ESB-aðild?
Ýmsum fullyrðingum hefur verið haldið á lofti um að matvælaverð muni lækka ef Ísland gengur í Evrópusambandið. Því hefur jafnvel verið haldið fram að það muni lækka um allt að fjórðung. Hvað er satt og logið í því?…
-
#126. - Er upptaka evru ógn við efnahag Íslands?
Jón Helgi Egilsson er doktor í peningamálahagfræði. Hann segir að upptaka evru gæti leitt hundruða milljarða króna tjón yfir íslenskt efnahagslíf ef atvinnuleysi myndi aukast vegna gjaldmiðilsins. Þetta er meðal þess…
-
#125. - Áslaug kveður, ESB-sumarið hefst
Í Spursmálum vikunnar er farið yfir pólitíska jarðskjálfta síðustu daga, brotthvarf Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur úr stjórnmálum og það sem kann að bíða hennar handan þingsalarins. Þá hefst heit umræða um…
-
Bókaspjall: Þorskastríðin með Guðna Th. Jóhannessyni
Í þættinum ræðir Stefán Einar Stefánsson við Guðna Th. Jóhannesson, sagnfræðiprófessor og fyrrverandi forseta Íslands, um bók hans Stund milli stríða: Saga landhelgismálsins 1961 til 1971. Rætt er um Þorskastríðin,…
-
#124. - Guðrún vs. Sigmundur og blikur á lofti
Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur náðu ekki saman um meirihluta í höfuðborginni, þrátt fyrir vonir margra þar um. Formenn flokkanna, þau Guðrún Hafsteinsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gera upp…
-
#123. - Er kreppuverðbólga að skella á landinu?
Sveitarstjórnarkosningarnar, efnahagshorfur og áhrif stýrivaxta á heimili og fyrirtæki eru meðal þess sem tekið er fyrir í Spursmálum í dag.Þar fara þau Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Katrín…
-
Bókaspjall: Frelsið eftir Mill með Hannesi Hólmsteini
Frelsi, nytjastefna, málfrelsi og staða hugmynda í samtímanum voru til umræðu þegar Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, ræddi við Stefán Einar Stefánsson í Bókaklúbbi Spursmála um bókina Frelsið eftir…
-
#122. - Mun ríkisstjórnin koma atkvæðagreiðslunni í gegn?
Meirihlutinn á Alþingi hefur sléttar þrjár vikur til að koma ákvörðun um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB í gegnum þingið. Takist það ekki 29. maí eða fyrr getur ekki orðið af henni í lok ágúst. Þessa dagana er hart tekist…
-
#121. - Gæti eldgos í Eyjum sett jarðgangagerð í uppnám?
Í Spursmálum dagsins verður öllum helstu spurningum svarað um það hvort mögulegt sé að bora 18 kílómetra göng milli lands og Eyja. Þá verður rætt við nýja oddvitaframbjóðendur í Garðabæ og Reykjavík. Þannig mæta þau…
-
Bókakvöld: Grænland í brennidepli
Samtal við Heiðar Guðjónsson, Eld Ólafsson og Ragnar Axelsson um stöðu Grænlands.
-
#119. - Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB?
Á Ísland, sem eitt ríkasta land í heimi, erindi inn í Evrópusambandið þar sem mörg ríki glíma við fátækt og efnahagserfiðleika? Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra hefur skoðun á því. Hann er væntanlegur í…
-
#118. - Eldfim umræða um Hamas-liða á Íslandi
Allt ætlaði um koll að keyra í kjölfar þess að Morgunblaðið upplýsti að menn með tengsl við Hamas-samtökin hefðu staðið að voðaverki í bílakjallara í Reykjavík. Lögreglan hefur orðið tvísaga um málið en nú virðist…
-
#117. - Flest teikn í hagkerfinu vísa í verri átt
Mjög gefur á bátinn í íslensku hagkerfi um þessar mundir og fátt sem gefur sérstaka ástæðu til bjartsýni. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttir sýnir ekki á nein spil um hvernig bregðast skuli við.Þau Bjarnheiður…
-
#116. - Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB
Mikið uppbrot á fjölmiðlamarkaði er í farvatninu eftir að tilkynnt var um kaup Símans á Vísi og útvarpsstöðum Sýnar. Þá berast fylkingar á banaspjótum út af spurningunni um aðildarviðræður við ESB. Þessi mál verða…
-
#115. - Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið?
Að 173 dögum liðnum liggur fyrir hvort Ísland hefji aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið? Hvaða sjónarmið munu liggja til grundvallar þegar þjóðin ákveður hvort leggja skuli út í þá vegferð? Það er stóra…
-
#114. - Er kreppa skollin á? Viðtal við Bjarna Benediktsson
Í byrjun mánaðarins tók Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætisráðherra, við starfi framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann mætir í fyrsta ítarlega viðtalið í kjölfar þess á vettvangi Spursmála. Í upphafi…
-
113. - Verður VG reist frá dauðum? Lifir Icelandair ETS af?
Rósa Björk Brynjólfsdóttir vill verða formaður VG en flokkurinn er í mikilli kreppu eftir að hafa dottið út af þingi og misst ríkisstyrki. Kosið verður um nýjan formann í flokknum um miðjan næsta mánuð. Icelandair býr…
-
#112. - Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn?
Jafnt og þétt leggst losunarkerfið ETS með þyngri hætti á íslenskt viðskiptalíf. Innan fárra ára mun kostnaður Icelandair við kerfið margfaldast. Hvaða áhrif mun það hafa? Þetta er meðal þess sem rætt er í Spursmálum…
-
#111. - Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin?
Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningamála situr fyrir svörum í Spursmálum í dag. Seðlabankanum hefur ekki tekist að hemja verðbólguna sem er 5,2%. Er hann reiðubúinn að hækka vexti? Margt bendir til þess…
-
#110. - Ari yfirgefur Sjálfstæðisflokkinn
Í morgun var tilkynnt að Ari Edwald myndi leiða Miðflokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum. Hann segir með því skilið við Sjálfstæðisflokkinn sem hann hefur gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir síðustu áratugi. Hann…
-
#109. - Er ríkisstjórnin að missa stjórn á hagkerfinu?
Allt virðist stefna í mjög hraða kólnun hagkerfisins á sama tíma og verðbólga eykst hratt. Hætt er við að ríkisstjórnin missi stjórn á kerfinu við slíkar aðstæður og háir vextir verði viðvarandi. Þessi staða verður…
-
Bókaspjall - Æviminningar Karls Sigurbjörnssonar
Fyrir jól kom út sjálfsævisaga Karls Sigurbjörnssonar biskups, „Skrifað í sand, minningabrot“. Hann lést árið 2024 en skildi eftir sig handrit að endurminningunum. Bókin var til umfjöllunar í bókaklúbbi Spursmála í…
-
#108. - Eru kjarasamningar í uppnámi?
Verðbólgan er á mikilli siglingu og gæti að öllu óbreyttu sett stærstu kjarasamningana á vinnumarkaði í uppnám í haust. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, bregst við nýjustu tíðindum af hagkerfinu í…
-
#107. - Baráttan um völdin hafin
Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varformaður hans, takast á um formannsstólinn í flokknum. Flokksþing fram undan Þann 15. febrúar næstkomandi verður nýr formaður…
-
#106. - Harðir slagir framundan
Vegna spennandi leiks Íslands og Króatíu í handknattleik karla, sem fram fer í Malmö klukkan 14:30 í dag hefur útsendingartími Spursmála verið fluttur til klukkan 12:00 í dag.Gestir þáttarins eru margir og áhugaverðir.…
-
#105. - Vændiskaup, verðbólguskot og einkunnagjöf í skólum
Mikil fréttavika er að baki sem náði hápunkti í morgun þegar Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar sagði af sér vegna gamalla ódrýgðra synda. Til að ræða fréttir vikunnar á vettvangi Spursmála þennan föstudaginn…
-
Bókaspjall - Íslandsklukkan með Loga Einars
Íslandsklukka Halldórs Laxness er eitt helsta stórvirki nóbelskáldsins. Bókin var tekin fyrir í desembermánuði í bókaklúbbnum og í kjölfarið settist Logi Einarsson menntamálaráðherra niður ásamt Stefáni Einari til að…
-
#104. - Evrópubrölt gegn öryggishagsmunum Íslands
Ef Ísland hyggst undirrita varnarsamning við Evrópusambandið verður að líta til þess að það hefur ekki yfir herstjórn að ráða. Þetta bendir Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra á. Hann er gestur fyrsta þáttar…
-
#103. - Ársuppgjör Spursmála: Hver á veiðiheimildirnar?
Hvað hefur staðið upp úr á árinu 2025? Í íþróttum, tísku og stjórnmálum. Svörin við því fást í Spursmálum dagsins þar sem öflugir blaðamenn Morgunblaðsins stinga saman nefjum fyrir framan myndavélarnar í þessum síðasta…
-
#102. - Ragnandi þingforseti og borgarlína í uppnámi
Blótsflaumur forseta Alþingis hefur dregið dilk á eftir sér og nú rísa stjórnmálaflokkar upp gegn fyrirhuguðu skipulagi borgarlínunnar. Þá keppa Íslendingar ekki í Eurovision meðan gyðingar taka þar þátt.Í fyrsta hluta…
More in News
Candace
Candace Owens
Lovett or Leave It
Lovett or Leave It
Real Time with Bill Maher
HBO Podcasts
Victor Davis Hanson: In His Own Words
Victor Davis Hanson | The Daily Signal
Still Counting
Crooked Media
Hacks On Tap
Vox Media
The Last Word with Lawrence O’Donnell
Lawrence O'Donnell, MS NOW
The Matt Walsh Show
The Daily Wire
Deadline: White House
Nicolle Wallace, MS NOW
The Next Level
The Bulwark
The Briefing with Jen Psaki
MS NOW, Jen Psaki
Ruthless Podcast
Josh Holmes, Comfortably Smug, Michael Duncan and John Ashbrook
Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.