Podcasts · Spursmál

#111. - Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin?

· 2 h 11 min

Episode #111. - Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin?

0:00 2:11:04

Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningamála situr fyrir svörum í Spursmálum í dag. Seðlabankanum hefur ekki tekist að hemja verðbólguna sem er 5,2%. Er hann reiðubúinn að hækka vexti? Margt bendir til þess enda hefur bankinn það verkefni samkvæmt lögum að halda verðbólgu í landinu sem næst verðbólgumarkmiði sem er 2,5%.

Hversu hátt geta vextirnir farið?

Seðlabankinn ákvað í síðustu viku að halda meginvöxtum bankans óbreyttum í 7,25% og í stað þess að halda áfram því vaxtalækkunarferli sem hafið var á árinu 2024 virðist margt benda til þess að bakslag sé komið í þá þróun. Getur verið að bankinn þurfi enn á ný að hækka vexti upp úr öllu valdi?

Í þættinum verður Þórarinn einnig spurður út í þær fyrirætlanir sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur uppi um að gera grundvallarbreytingar á almannatryggingakerfinu. Þær breytingar kallar Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og fyrrverandi efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar, ríkisfjármálalega tímasprengju.

Þau Lára G. Sigurðardóttir, doktor í lýðheilsuvísindum, og Elías Blöndal Guðjónsson eigandi Santé eru einnig gestir þáttarins og takast á um sölu og neyslu áfengis í samræmi við núgildandi áfengislög.

Þá mæta í settið þeir Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, og Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, og ræða það sem bar hæst í fréttum vikunnar.

The episode on the publisher’s site (opens in a new tab)

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.