#129. - Ungt fólk, stórar spurningar og harðnandi barátta
· 1 h 23 min
Episode #129. - Ungt fólk, stórar spurningar og harðnandi barátta
Baráttan um framtíð Íslands gagnvart Evrópusambandinu færist nú á nýtt stig og í Spursmálum vikunnar er tekist á við stóru spurningarnar sem blasa við þjóðinni fyrir atkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Í þættinum er rætt um upplýsingagjöf stjórnvalda, stöðu krónunnar, áhrif mögulegrar aðildar á atvinnulíf og heimili landsmanna og ekki síst það hvernig ungt fólk hyggst láta til sín taka í einni stærstu pólitísku umræðu síðari ára.
Farið er yfir fréttir vikunnar, þar á meðal hvalveiðar, stöðu Landhelgisgæslunnar, menntamál og þá umræðu sem nú stendur um einkunnagjöf og samræmt mat í skólakerfinu. Gestir þáttarins koma úr ólíkum áttum og draga fram mismunandi sjónarmið, en sameiginlegt er að umræðan er beinskeytt, lifandi og á köflum snörp. Í seinni hluta þáttarins mætast fulltrúar ungs fólks sitthvoru megin í ESB-deilunni og ræða hvað raunverulega er undir þegar þjóðin gengur að kjörborðinu.
Gestir þáttarins eru Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu DMI og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akranesi, og Einar Jóhannes Guðnason, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Kópavogi, sem fara yfir fréttir vikunnar með Stefáni Einari Stefánssyni. Í síðari hluta þáttarins mæta Júlíus Viggó Ólafsson, formaður Ung gegn ESB-aðild, og Óðinn Freyr Baldursson, formaður Ungra Evrópusinna.
Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.