#130. - Innflutningur á glæpaklíkum og spurningin um ESB
· 1 h 21 min
Episode #130. - Innflutningur á glæpaklíkum og spurningin um ESB
Margt hefur dregið til tíðinda í íslensku samfélagi í vikunni sem nú er að líða. Á vettvangi Spursmála verður drepið niður í umræðu um nokkur helstu málin, meðal annars stórt fíkniefnasmygl sem nú tengist beint veitingu ríkisborgararétts til albansks manns árið 2015. Hann er nú Íslendingur en fyrrgreint ár fóru ákveðnir fjölmiðlar og alþingismenn hamförum vegna ákvörðunar útlendingastofnunar um að vísa albanskri fjölskyldu úr landi.
Þingið kiknaði í hnjánum og gestrisni þess hefur nú verið endurgoldin með fyrrnefndum hætti þar sem hópur glæpamanna vinnur að því hörðum höndum að dæla ólöglegum fíkniefnum inn í landið.
Fréttir vikunnar og ESB-málin í forgrunni
Þetta mál og fleiri ræða þeir Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs Fjarðarbyggðar og Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi alþingismaður og bæjarstjóri og rithöfundur með meiru þar sem farið er yfir fréttir vikunnar.
Ásmundur sat á Alþingi þegar fyrrnefnd ákvörðun var tekin.
Í síðari hluta þáttarins er rætt við dr. Björn Zoëga, forstjóra King Faisal sjúkrahússins í Sádi-Arabíu en hann kom fram á upphafsfundi Áfram Ísland á mánudaginn þar sem hann færði rök fyrir því af hverju Íslendingar eigi að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst næstkomandi.
Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.