#135. - Hverju búast menn við í aðildarsamningi?
· 1 h 35 min
Episode #135. - Hverju búast menn við í aðildarsamningi?
Hvers væntir Já til að sjá-hreyfingin í aðildarsamningi við Evrópusambandið þegar hann liggur fyrir? Þeirri spurningu verður beint að Jónasi Hagan, fjárfesti og einum stofnenda hreyfingarinnar í Spursmálum dagsins.Þar mætir hann Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi en hún hefur ákveðnar hugmyndir um það hvað Evrópusambandið muni leggja upp með þegar kemur að stærstu auðlind þjóðarinnar í kringum landið.Þá mun Andrés Magnússon, blaðamaður og fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu mæta til leiks og ræða fréttir vikunnar. Þar verður sjónum meðal annars beint að hlutverki fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu sem þeirrar sem fram fer þann 29. ágúst. Eiga fjölmiðlar að vera hlutlausir í umfjöllun sinni?
Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.