Podcasts · Spursmál

#134. - Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi

· 1 h 25 min

Episode #134. - Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi

0:00 1:25:22

Dagur B. Eggertsson, alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri segir gríðarlegan velferðarábata felast í því að taka upp evru á Íslandi. Vitnar hann meðal annars til 12 ára gamallar skýrslu í því efni. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs og hagfræðingur segir skýrsluna úrelta.

Þau takast á um efnið og hvaða tækifæri felist mögulega í því að Ísland gangi í Evrópusambandið í aukaþætti Spursmála sem sendur er út á mbl.is klukkan 10:00 í dag. Unnin að beiðni ASÍ og fleiri 2014.

Skýrslan sem um ræðir og varð umtalsefni eftir að Dagur birti grein á visir.is þar sem hann vitnaði til hluta niðurstaðna hennar, var unnin af Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands árið 2014 að beiðni Alþýðusambands Íslands og nokkurra atvinnurekendasamtaka.

Þar eru kostir upptöku evru tíundaðir, meðal annars í ljósi þess gríðarlega verkefnis sem stóð fyrir dyrum um að koma Íslandi út úr fjármagnshöftum. Stjórnvöld Íslands á árunum 2009-2013 höfðu heykst á því verkefni og það var ekki fyrr en með ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem lausn fékk á þeim málum með tröllauknum samningum við kröfuhafa föllnu bankanna.

Ásdís Kristjánsdóttir brást við skrifum Dags og sagði stöðu efnahags- og peningamála allt aðra á Íslandi í dag en árið 2014. Grundvallarbreytingar hefðu verið gerðar á kerfinu sem hafi komið Íslandi á beinu brautina. Hún varar við inngöngu í ESB og upptöku evru og segir að með því missi Ísland mikilvægt hagstjórnartæki úr höndum.

The episode on the publisher’s site (opens in a new tab)

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.