#133. - Hefði Kerecis orðið til innan Evrópusambandsins?
· 1 h 34 min
Episode #133. - Hefði Kerecis orðið til innan Evrópusambandsins?
Guðmundur Fertram Sigurjónsson er meðal gesta Spursmála þennan föstudaginn og ræðir þar af hverju hann leggst gegn aðildarviðræðum við ESB en hann flutti ræðu á fundi samtakanna Áfram Ísland sem haldinn var á Selfossi á miðvikudaginn síðastliðinn.Hann býr yfir alþjóðlegri reynslu og hefur starfað við uppbyggingu fyrirtækja í Bandaríkjunum, ýmsum ríkjum Evrópu og á Nýja-Sjálandi.Hver staðan á Kerecis?Í þættinum verður hann einnig spurður út í stöðuna á Kerecis sem rekur framleiðslustarfsemi sína á Ísafirði en fyrirtækið var selt til danska lækningavöruframleiðandans Coloplast fyrir þremur árum á nærri 180 milljarða króna.Íslenskt atvinnulíf, sjávarútvegur og ESBÍ þættinum verður einnig rætt við þá Hjálmar Vilhjálmsson sem situr í stjórn Já til að sjá og Hermann Guðmundsson sem er meðal stofnfélaga Áfram Ísland. Hjálmar er framkvæmdastjóri hjá útgerðarfélaginu Brimi og verður hann meðal annars spurður út í álitamál tengd íslenskum sjávarútvegi ef Ísland gengur í ESB. Hermann er forstjóri Kemi. Hvorugur þeirra kemur þó til samtals um þessi mál sem fulltrúi fyrirtækisins sem þeir starfa hjá heldur sem einstaklingar sem vilja beita sér fyrir málefnalegri umræðu um mögulega aðild Íslands að ESB.
Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.