Podcasts · Spursmál

#137. - Böðull látinn laus og kjarasamningar í uppnámi

· 1 h 52 min

Episode #137. - Böðull látinn laus og kjarasamningar í uppnámi

0:00 1:51:59

Á sama tíma og þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB stendur fyrir dyrum styttist í að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði verði endurskoðaðir. Hvað ætlar verkalýðshreyfingin að gera? En atvinnurekendur?

Þeim spurningum verður reynt eftir fremsta megni að svara í Spursmálum dagsins þar sem Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins mætast og fara yfir stöðuna. Ljóst er að verðbólgan mælist langt yfir því marki sem samið var um árið 2024.

Í þættinum verður einnig rætt við Óskar Magnússon, lögmann, rithöfund og bónda á Sámstaðabakka í Fljótshlíð og Sigríði Á. Andersen, þingmann Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra.

Þau verða meðal annars spurð út í nýjustu vendingar í máli áhafnarinnar á Bandero sem gerði óskunda inni í íslenskri lögsögu fyrir skemmstu og einnig verður vöngum velt yfir því hvernig það gat komið til að böðullinn Angjelin Sterkaj sem varð manni að bana með hrottafengnum hætti í Rauðagerði árið 2021 er laus úr íslensku fangelsi og farinn til heimalands síns, Albaníu.

The episode on the publisher’s site (opens in a new tab)

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.