#138. - 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi
· 1 h 49 min
Episode #138. - 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands er gestur Stefáns Einars Stefánssonar í beinni útsendingu í Spursmálum.
Þar mun hann gera upp baráttuna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst, næstkomandi. Ólafur Ragnar hefur ekki farið leynt með afstöðu sína gegn Evrópusambandinu og hefur verið gagnrýninn á mögulega aðild Íslands að ESB. Segir hann slíkan könnunarleiðangur ótímabæran, enda sé Íslandi, líkt og Noregi og Sviss, betur borgið utan sambandsins og án upptöku á evru.
Í þáttinn mæta einnig hagfræðingarnir Konráð Guðjónsson og Þorsteinn Þorgeirsson til að ræða kosti og galla mögulegrar ESB-aðildar fyrir íslenskt efnahagslíf, áhrif upptöku á evru og stöðu vinnumarkaðarins í því samhengi.
Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.