Podcasts · Spursmál

#114. - Er kreppa skollin á? Viðtal við Bjarna Benediktsson

· 1 h 42 min

Episode #114. - Er kreppa skollin á? Viðtal við Bjarna Benediktsson

0:00 1:42:16

Í byrjun mánaðarins tók Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætisráðherra, við starfi framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann mætir í fyrsta ítarlega viðtalið í kjölfar þess á vettvangi Spursmála.

Í upphafi verður hann spurður út í kynni sín af Davíð Oddssyni, fyrrverandi forsætisráðherra og ritstjóra Morgunblaðsins, sem féll frá um liðna helgi. Þeir áttu lengi samfylgd, fyrst í þinginu en síðan á þjóðarsviðinu þar sem Bjarni leiddi flokkinn sem Davíð hafði stýrt á árunum 1991-2005.

Viðkvæm staða efnahagsmála

Þá verður talinu beint að stöðu efnahagsmála en þar hefur syrt verulega í álinn á síðustu mánuðum og vaxtasleggjan sem Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, hafði lofað að beita þjóðinni til handa hefur alls ekki virkað.

Hvernig standa atvinnuvegirnir og eru sóknarfæri fyrir íslensk fyrirtæki í núverandi ástandi?

Hvað finnst Bjarna Benediktssyni um atkvæðagreiðsluna um mögulega aðild að ESB?

Mun stríðið í Íran leiða áföll yfir Ísland?

Í fyrri hluta þáttarins verður hins vegar rætt við þá Þórð Gunnarsson, hagfræðing og Stefán Gunnar Sveinsson, blaðamann á Morgunblaðinu en þeir hafa báðir sérþekkingu á málefnum sem tengjast hinum miklu stríðsátökum sem nú geisa í Íran.

Í viðtali við þá verður reynt að varpa upp mynd af atburðum síðastliðinnar viku og hvaða áhrif þeir kunni að hafa vítt og breitt um heimsbyggðina.

The episode on the publisher’s site (opens in a new tab)

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.