Podcasts · News

Spursmál

Ritstjórn Morgunblaðsins

162 episodes

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is

More about the show

Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefáns­sonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14.

Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum á mbl.is.

Episodes page 2 of 4

  1. #102. - Ragnandi þingforseti og borgarlína í uppnámi

    · 1 h 53 min

    Blótsflaumur forseta Alþingis hefur dregið dilk á eftir sér og nú rísa stjórnmálaflokkar upp gegn fyrirhuguðu skipulagi borgarlínunnar. Þá keppa Íslendingar ekki í Eurovision meðan gyðingar taka þar þátt.Í fyrsta hluta…

  2. #101. - Titringur á stjórnarheimilinu og jólaverslun í algeymi

    · 1 h 40 min

    Hvert stórmálið skekur annað á vettvangi stjórnmálanna og nú er menntamálaráðherra sakaður um helbera valdníðslu. Hversu styrkum fótum situr ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Hefur hún stjórn á Flokki fólksins eða…

  3. Bókaspjall - Helförin með Þór Whitehead

    · 1 h 26 min

    Það var ekki svo að nokkrir menn í Þýskalandi hafi vaknað upp morgun einn og ákveðið að útrýma öllum gyðingum. Morðhyggjan sem heltók Evrópu var langtímaþróun sem náði hámarki í helförinni. Þetta er meðal þess sem…

  4. #100.- Þjarmað að Guðrúnu og gallað fæðingarorlofskerfi?

    · 1 h 41 min

    Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, er gestur Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum þennan föstudaginn. Flokkur hennar mælist með sögulega lítið fylgi og kurr er meðal flokksmanna. Hvað telur hún…

  5. #99. - Þungir dómar felldir og Kerecis sendir milljarð til Úkraínu

    · 1 h 29 min

    Mikils titrings gætir meðal menningarelítunnar vegna leikhúsdóma Símons Birgissonar sem hann hefur birt að undanförnu á Vísi. Þar lætur hann leikskáld, leikstjóra og leikara gjarnan hafa það óþvegið og hafa sumar…

  6. #98. - Tollastríð ESB og Íslands

    · 46 min

    Evrópusambandið situr fast við sinn keip og leggur verndartolla á íslenskan iðnað. Hvað segja fulltrúar stjórnar og stjórnarandstöðu um málið? Það kemur fram í aukaþætti af Spursmálum sem efnt er til í ljósi nýjustu…

  7. #97. - Er RÚV í sama vanda og BBC?

    · 1 h 44 min

    Er íslenski ríkisfjölmiðillinn í sams konar vanda og BBC í Bretlandi sem nú sætir harðri gagnrýni fyrir vinnubrögð og hlutdrægni í fréttaflutningi sínum? Þeir Ingvar Smári Birgisson, lögmaður og stjórnarmaður í RÚV,…

  8. Bókaspjall: Við verðum að tala um Xi

    · 1 h 08 min

    Hvert setur kínverski drekinn stefnuna? Er hætt við að Xi Jinping muni fyrirskipa næstöflugasta her í heimi að ráðast inn í Taívan? Þetta bar á góma á vettvangi Bókaklúbbs Spursmála. Í síðustu viku stóð klúbburinn…

  9. # 96. - Skipt um hjarta án snertingar

    · 1 h 35 min

    Tæp tvö ár eru liðin frá því að Björn Zoëga tók við stjórn konunglega sjúkrahússins í Sádi-Arabíu. Þar er verið að brjóta blað í skurðaðgerðum með róbótum en einnig á sviði krabbameinslækninga. Björn er gestur…

  10. # 95. - Ríkislögreglustjóri valtur í sessi og ríkisborgaralottóið

    · 2 h 12 min

    Ríkislögreglustjóri kveinkar sér undan hallarekstri en sólundar fjármunum almennings í rándýrar allsherjarráðgjöf. Á sama tíma er Landspítalanum gert erfitt um vik að ráða fólk til starfa. Þeir mæta til leiks Árni…

  11. #94. - Hamfarir á Grundartanga og meint bakslag

    · 1 h 28 min

    Í þættinum verður birt brot úr viðtali við bandarískan gjörgæsluhjúkrunarfræðing, Joanne Blank að nafni, sem starfað hefur á Landspítalanum undanfarin ár. Hún sótti um ríkisborgararétt hér á landi í fyrra en Alþingi…

  12. #93. - Dæmdur saklaus og uppgjör við bensínstöðvarlóðir

    · 2 h 34 min

    Steinþór Gunnarsson var dæmdur í fangelsi, bæði í héraði og af Hæstarétti. Framkvæmd var húsleit hjá honum og hann handtekinn fyrir framan son sinn. Að lokum kom í ljós að hann hafði engin lög brotið. Steinþór rekur…

  13. Bókaspjall á Kjarval: Hagfræði í hnotskurn

    · 1 h 04 min

    Bók septembermánaðar í Bókaklúbbi Spursmála var Hagfræði í hnotskurn, eftir Henry Hazlitt, klassískt rit um málefni sem varðar alla. Af því tilefni settist Stefán Einar niður með Ásdísi Kristjánsdóttur hagfræðingi og…

  14. #92. - Söguleg vika, átök í Kópavogi og gerræði utanríkisráðherra

    · 1 h 44 min

    Í fréttum vikunnar er rætt við fjölmiðlakonuna Sunnu Sæmundsdóttur og Björn Inga Hrafnsson, aðstoðarmann formanns Miðflokksins. Þau eru öllum hnútum kunnug í íslensku þjóðlífi en ræða einnig nýjan friðarverðlaunahafa…

  15. #91. - Frekari vendingar eftir fall Play

    · 38 min

    Myndin er tekin að skýrast betur eftir fall flugfélagsins Play. Í dag er vika liðin frá gjaldþroti þess. En áhrifa fallsins gætir áfram og inngrip stjórnvalda kann að hafa ófyrirséðar afleiðingar.Viðmælendurnir þekkja…

  16. #90. - Umræða í ójafnvægi og enn eitt flugfélagið geispar golunni

    · 1 h 24 min

    Gjaldþrot Play setti mikinn svip á samfélagsumræðuna í vikunni og ljóst að fall flugfélagsins er að hafa mikil áhrif á efnahagslífið í heild. Í nýjasta þætti Spursmála mæta til leiks tveir öflugir menn til að rýna í…

  17. #89. - Baráttan um valdastóla í sveitarstjórnum og Evrópumálin krufin

    · 1 h 36 min

    Margir gera sig líklega í baráttunni um valdastólana í sveitarstjórnum landsins. Nafn Katrínar Júlíusdóttur hefur verið nefnt í því sambandi. Hún mætir í Spursmál ásamt Björgu Magnúsdóttur, fyrrverandi aðstoðarmanni…

  18. #88. - 1.607 milljarðar, olíuævintýri og misgóðir lífeyrissjóðir

    · 1 h 40 min

    Gæti ríkissjóður hagnast um þúsundir milljarða á því ef olíuvinnsla hefst á Drekasvæðinu? Það fullyrða þeir Heiðar Guðjónsson og Haukur Óskarsson en þeir hafa í nærri tvo áratugi unnið að því að koma olíuleit og…

  19. Manifestó eins áhrifamesta manns 20. aldarinnar

    · 41 min

    Stefán Einar og Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur ræða um bók ágústmánaðar í Bókaklúbbi Spursmála: Líf á jörðinni okkar eftir David Attenborough. Í bókinni eru lofstlagsbreytingar og þau áhrif sem mannfólkið hefur á…

  20. # 87. - Yfirvofandi stríðsátök, aftaka í Utah, Skatturinn sér um sína og Vinnslustöð í vanda

    · 1 h 49 min

    Heimur á heljarþröm myndu einhverjir segja þegar stjórnmálamenn eru teknir af lífi í beinni útsendingu og Rússar herða tökin gagnvart Evrópu allri. Móta þarf nýja varnarmála stefnu fyrir Ísland. Þetta er meðal þess…

  21. # 86. - Snorri í gapastokknum og skólakerfi og laxeldi í lamasessi?

    · 2 h 32 min

    Sí­fellt færri ung­menni geta lesið sér til gagns og veiðirétt­ar­haf­ar eru farn­ir að stífla laxveiðiár af ótta við slysaslepp­ing­ar lax­eld­is­ins. Hvar er í gangi í ís­lensku sam­fé­lagi? Þetta og fleira verður…

  22. #85. - Vendingar í njósnamáli og þinginu þjófstartað

    · 1 h 47 min

    Spurs­mál hefja nú göngu sína á mbl.is að nýju eft­ir stutt sum­ar­leyfi. Í upp­hafi fyrsta þátt­ar verður upp­lýst um nýj­ar vend­ing­ar í njósna­máli PPP ehf. sem teyg­ir sig djúpt inn í ís­lenskt stjórn­kerfi. Í…

  23. Fullveldið dýrmætt á ögurstundu: Bókaspjall

    · 42 min

    Það reynd­ist afar mik­il­vægt fyr­ir ís­lenska ríkið að nýta full­veld­is­rétt sinn þegar kröfu­haf­ar föllnu bank­anna sóttu á yf­ir­völd. Þetta seg­ir Sig­urður Már Jóns­son í viðtali á vett­vangi Bóka­klúbbs…

  24. Persónunjósnir og aftökur Stóra bróður nútímans - Samtal við Kára Stefánsson um 1984.

    · 1 h 28 min

    Hús­fyll­ir var á Vinnu­stofu Kjar­vals á dög­un­um þegar ríf­lega 150 klúbbmeðlim­ir mættu til leiks á þriðja viðburð Bóka­klúbbs Spurs­mála. Þar sett­ist Kári Stef­áns­son, stofn­andi Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar,…

  25. #84. - Kjarnorkuástand á þinginu

    · 1 h 27 min

    For­seti Alþing­is hef­ur beitt kjarn­orku­ákvæði þing­skap­ar­laga gegn minni­hlut­an­um á þingi. Starf­semi þess er í upp­námi í kjöl­farið. Aukaþátt­ur af Spurs­mál­um fer í að greina hina al­var­legu stöðu. Átök…

  26. #83. - Allt í hers höndum við Austurvöll

    · 1 h 02 min

    Það er í meira lagi raf­magnað and­rúms­loftið á Alþingi þessa sól­ar­hring­ana. Rík­is­stjórn­in er ekki að koma sín­um mik­il­væg­ustu mál­um í gegn og óvíst er hvenær þing get­ur farið í sum­ar­frí. Í nýjasta þætti…

  27. #82. - Heimsstyrjöld ólíkleg, borgin skrefuð og allir á Swingers club

    · 1 h 38 min

    Ólík­legt er að átök­in milli Írans og Ísra­els breiðist út í Mið-Aust­ur­lönd­um. Fyrr­nefnda ríkið virðist ein­angrað og án vina. Hins veg­ar er Banda­ríkja­for­seta vandi á hönd­um heima fyr­ir í ljósi þeirra…

  28. #81. - Mútur, hótanir og stórtónleikar í Vaglaskógi

    · 1 h 38 min

    Er­lend­ir vog­un­ar­sjóðir beittu öll­um ráðum til þess að hafa rík­is­stjórn Íslands und­ir þegar reynt var að lyfta gjald­eyr­is­höft­um. Þeir höfðu ekki er­indi sem erfiði. En eft­ir­leik­ur­inn var…

  29. #80. - Gegn árangri í Breiðholti og óvíst með frekari vaxtalækkanir

    · 2 h 10 min · S1 E80

    Borg­ar­yf­ir­völd gera nú allt sem í þeirra valdi stend­ur til þess að eyðileggja starf­semi Aþenu í Breiðholti. Þetta seg­ir Brynj­ar Karl Sig­urðsson í sam­tali í Spurs­mál­um. Í því fel­ist kven­fyr­ir­litn­ing. Í…

  30. #79. - Aðvörun Fertrams og tekist á um búvörulög

    · 2 h 09 min

    Þau Hulda Bjarna­dótt­ir, for­seti Golf­sam­bands Íslands, og Sölvi Tryggva­son, hlaðvarps­stjórn­andi og fjöl­miðlamaður, ræða frétt­ir vik­unn­ar. Ber þar margt á góma, meðal ann­ars sal­an á Íslands­banka þar sem…

  31. Kúbudeilan 1962 - bók mánaðarins

    · 20 min

    Kúbudeilan 1962 eftir Max Hastings hefur verið bók mánaðarins í maímánuði. Hún kom fyrst út árið 2022 og setur magnaða atburði sem áttu sér stað fyrir rúmum sextíu árum í samhengi. Þá er merkilegt að sjá hversu margt…

  32. #78. - Ákall um afsagnir í æðstu stöðum

    · 1 h 12 min

    Úlfar Lúðvíks­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri á Suður­nesj­um, tek­ur enga fanga í ít­ar­legu viðtali í Spurs­mál­um. Seg­ir hann rík­is­lög­reglu­stjóra og ráðuneyt­is­stjóra dóms­málaráðuneyt­is­ins hafa brugðist…

  33. #77. - Ár í kosningar og vextirnir valda áhyggjum

    · 1 h 58 min

    Í dag er slétt ár þar til Íslend­ing­ar ganga að kjör­borðinu og kjósa til 62 sveit­ar­stjórna. Víða stefn­ir í harðan slag og ljóst að marg­ir þurfa að verja vígið og enn aðrir sem stefna á að ná völd­um. Þetta er…

  34. #76. - Hvítur reykur, sekt séra Friðriks og meint málþóf

    · 1 h 47 min

    Jón Magnús­son hæsta­rétt­ar­lögmaður hef­ur ásamt hópi fleiri manna sem kynnt­ust sr. Friðrik skoðað málið og þá hef­ur Morg­un­blaðið aflað gagna frá KFUM sem ekki hafa komið fyr­ir augu al­menn­ings áður. Rætt er…

  35. #75. - Persónunjósnir, líkbrennsla og neyðarbirgðir

    · 1 h 30 min

    Hvað ætluðu út­send­ar­ar Björgólfs Thors að gera með upp­lýs­ing­ar um Vil­hjálm Bjarna­son? Tengd­ist það brenni­víni og kvenna­mál­um? Því svar­ar bíl­stjór­inn á V 279 í Spurs­mál­um í dag. Með njósn­ara á…

  36. #74. - Helsingjasteik með brúnuðum og Logi ósáttur við orð Sigurjóns

    · 1 h 27 min

    Logi Ein­ars­son, ráðherra fjöl­miðlamála, hyggst standa við þá ákvörðun sína að draga úr styrkj­um til tveggja stærstu einka­reknu fjöl­miðla lands­ins. Þetta staðfest­ir hann í sam­tali á vett­vangi Spurs­mála. Í…

  37. #73. - Slegið á puttana á skattaóðri ríkisstjórn

    · 1 h 19 min

    Sí­fellt kem­ur bet­ur í ljós að rík­is­stjórn Kristrún­ar Frosta­dótt­ur stefn­ir á stór­felld­ar skatta­hækk­an­ir á fólk og fyr­ir­tæki. Ásdísi Kristjáns­dótt­ur bæj­ar­stjóra í Kópa­vogi líst ekki á stöðuna. Hún er…

  38. #72. - Trump og Kristrún setja allt í uppnám

    · 1 h 32 min

    Þjóðir heims hafa brugðist ókvæða við þeirri ákvörðun Trumps að leggja vernd­artolla á þjóðir heims. Sveit­ar­fé­lög­in er í sama gír gagn­vart aðgerðum rík­is­stjórn­ar Kristrún­ar Frosta­dótt­ur. Þetta er meðal þess…

  39. #71. - Sykurpabbar í stuði og ráðherra sakaður um ósannindi

    · 1 h 28 min

    Fram­kvæmda­stjóri Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi seg­ir fjár­málaráðherra og at­vinnu­vegaráðherra halda fram ósann­ind­um í fram­setn­ingu sinni á fram­lögðum til­lög­um um hækk­un veiðigjalda.Millj­arðar á…

  40. #70. - Fellir mál Ásthildar Lóu ríkisstjórnina? Ögurstund hjá Framsókn

    · 1 h 32 min

    Ekk­ert kemst á dag­skrá þenn­an frétta­dag­inn annað en af­sögn barna- og mennta­málaráðherra. En hver verður eft­ir­leik­ur máls­ins? Er rík­is­stjórn­in í hættu? Hef­ur orðspor Íslands skaðast á er­lend­um…

  41. #69. - Er Trump með plan? Er heimsstyrjöld í aðsigi?

    · 1 h 33 min

    Á sama tíma og Don­ald Trump legg­ur tolla á ná­granna­ríki Banda­ríkj­anna, Kína og Evr­ópu­sam­bandið reyn­ir hann að toga Úkraínu­menn og Rússa að samn­inga­borðinu. Hann kall­ar eft­ir friði í Evr­ópu. Er Trump í…

  42. #68. - Mega blaðamenn brjótast inn á heimili fólks?

    · 1 h 25 min

    Hvar liggja mörk friðhelgi einka­lífs­ins og hvar tek­ur rétt­ur al­menn­ings til upp­lýs­inga­gjaf­ar við? Eva Hauks­dótt­ir, lögmaður Páls Stein­gríms­son­ar ræðir það í Spurs­mál­um. Og margt fleira er á dag­skrá.…

  43. #67. - Stjórnarskrárbrot, kjaraklípa og Trumpað ástand

    · 1 h 38 min

    Svo virðist sem nýir kjara­samn­ing­ar við kenn­ara­stétt­ina muni draga al­var­leg­an dilk á eft­ir sér. Risa­samn­ing­ar sem gerðir voru við 85% vinnu­markaðar­ins í fyrra gætu kom­ist í upp­nám. Þetta má ráða af…

  44. #66. - Valdatafl í Valhöll og Jakob vísar í dularfullan klúbb

    · 2 h 05 min

    Tvær fylk­ing­ar berj­ast um völd­in í Sjálf­stæðis­flokkn­um. Önnur að baki Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur og hin að baki Guðrúnu Haf­steins­dótt­ur. Þær til leiks í Spurs­mál­um og svara krefj­andi spurn­ing­um.…

  45. #65. - Tækifæri á Grænlandi og Jens Garðar í varaformanninn?

    · 1 h 25 min

    Liggja stór tæki­færi fyr­ir Íslend­inga á Græn­landi. Því svar­ar gull­leit­armaður­inn Eld­ur Ólafs­son í nýj­asta þætti Spurs­mála en hann ritaði afar áhuga­verða grein um málið sem birt var á miðopnu…

  46. #64. - Sjallar í sjálfheldu og afarkostir innan ríkisstjórnarsamstarfs

    · 51 min

    Hild­ur Björns­dótt­ir, leiðtogi Sjálf­stæðis­flokks­ins í borg­ar­stjórn virðist eiga fáa kosti í til­raun til að mynda nýj­an meiri­hluta. Hún er til svars á vett­vangi Spurs­mála. Um liðna helgi var til­raun gerð…

  47. #63. - Lífshættuleg byrlun og stormar í vatnsglasi

    · 1 h 35 min

    Í þættinum fer Páll yfir at­b­urðarás­ina sem nærri dró hann til dauða en hann rek­ur einnig hina tor­sóttu leið sem hann hef­ur þurft að feta til þess að fá úr því skorið hverj­ir það voru sem brut­ust inn í sím­ann…

  48. #62. - Umdeild umsvif, langdregin busavígsla og óttalegt væl í þingmönnum

    · 1 h 24 min

    Í þetta sinn mæt­ir til leiks Hanna Katrín Friðriks­son, at­vinnu­vegaráðherra. Marg­ir stór­ir mála­flokk­ar heyra und­ir ráðuneyti henn­ar, allt frá inn­lendri mat­væla­fram­leiðslu á sjó og landi til ferðaþjón­ustu…

  49. # 61. - Framkvæmdastopp, Króatía og óheppilegar nasistakveðjur

    · 1 h 15 min

    Mik­il tíðinda­vika er að baki þar sem Don­ald Trump tók við embætti for­seta, Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dótt­ir ákvað að víkja úr for­ystu­sveit Sjálf­stæðis­flokks­ins og hand­bolta­landsliðið gerði allt vit­laust.…

  50. #60. - Orkuöflun í uppnámi og hallarbyltingar í aðsigi

    · 1 h 15 min

    Stefn­ir í hall­ar­bylt­ingu í Fram­sókn­ar­flokkn­um um svipað leyti og Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn vel­ur nýja for­ystu? Ljóst er að alþing­is­kosn­ing­arn­ar 30. nóv­em­ber síðastliðinn draga dilk á eft­ir sér á…

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.