#63. - Lífshættuleg byrlun og stormar í vatnsglasi
· 1 h 35 min
Episode #63. - Lífshættuleg byrlun og stormar í vatnsglasi
Í þættinum fer Páll yfir atburðarásina sem nærri dró hann til dauða en hann rekur einnig hina torsóttu leið sem hann hefur þurft að feta til þess að fá úr því skorið hverjir það voru sem brutust inn í símann og komu í kjölfarið gögnum úr innbrotinu á Þórð Snæ Júlíusson, þáverandi ritstjóra Kjarnans og Aðalstein Kjartansson, blaðamann á Stundinni.
Áður en Páll mætir til leiks fer Stefán Einar yfir fréttir vikunnar með þeim Ólöfu Skaftadóttur, stjórnanda hlaðvarpsins Komið gott, og Þorgrími Sigmundssyni, þingmanni Miðflokksins.
Þar er af mörgu að taka, meðal annars væringar innan borgarstjórnar og nú heyrist víða pískrað í hornum að verið sé að máta saman nýja meirihluta til þess að stýra borginni fram á vorið 2026 en þá verður að nýju gengið til sveitarstjórnarkosninga.
Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.