#64. - Sjallar í sjálfheldu og afarkostir innan ríkisstjórnarsamstarfs
· 51 min
Episode #64. - Sjallar í sjálfheldu og afarkostir innan ríkisstjórnarsamstarfs
Hildur Björnsdóttir, leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn virðist eiga fáa kosti í tilraun til að mynda nýjan meirihluta. Hún er til svars á vettvangi Spursmála.
Um liðna helgi var tilraun gerð til þess að mynda nýjan meirihluta Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks, Flokks fólksins og Viðreisnar.
Þær hugmyndir runnu út í sandinn þegar ljóst varð að Flokkur fólksins hefur útilokað samstarf við Sjálfstæðisflokkinn.
Hvaða meirihlutamynstur er þá í myndinni?
Hildur fer yfir stöðuna í Spursmálum í dag.
Áður en kemur að viðtalinu við hana mæta þeir á svæðið, álitsgjafarnir og reynsluboltarnir, Björn Ingi Hrafnsson, fyrrum oddviti Framsóknar í borgarstjórn og núverandi aðstoðarmaður formanns Miðflokksins og Gísli Freyr Valdórsson, stjórnandi Þjóðmála. Þeir eru gjörkunnugir því völundarhúsi sem valdamenn í borginni reyna nú að feta í átt að nýjum meirihluta.
Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.