#93. - Dæmdur saklaus og uppgjör við bensínstöðvarlóðir
· 2 h 34 min
Episode #93. - Dæmdur saklaus og uppgjör við bensínstöðvarlóðir
Steinþór Gunnarsson var dæmdur í fangelsi, bæði í héraði og af Hæstarétti. Framkvæmd var húsleit hjá honum og hann handtekinn fyrir framan son sinn. Að lokum kom í ljós að hann hafði engin lög brotið.
Steinþór rekur sögu sína í dæmalausu viðtali á vettvangi Spursmála í dag þar sem ekkert er dregið undan.Listamenn og fréttir vikunnar
Þá mæta á vettvang listamennirnir Magnús Jóhann Ragnarsson, píanóleikari og tónskáld og Kjartan Logi Sigurjónsson, grínisti. Þeir fara yfir fréttir vikunnar en ræða einnig áhugaverð verkefni sem þeir hafa unnið að á síðustu misserum.
Þá takast þau á um hina umdeildu lóðasamninga sem Reykjavíkurborg gerði á sínum tíma við olíufélögin stóru, þau Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni og Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri og núverandi alþingismaður.
Á sínum stað er svo auðvitað yfirferð Ásthildar Hannesdóttur á stjórnmálunum eins og þau birtast okkur á samfélagsmiðlum. Þar er engin tæpitunga töluð.
Hvað gerði borgin við lóðirnar?
Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.