Podcasts · Spursmál

#67. - Stjórnarskrárbrot, kjaraklípa og Trumpað ástand

· 1 h 38 min

Episode #67. - Stjórnarskrárbrot, kjaraklípa og Trumpað ástand

0:00 1:38:23

Svo virðist sem nýir kjara­samn­ing­ar við kenn­ara­stétt­ina muni draga al­var­leg­an dilk á eft­ir sér. Risa­samn­ing­ar sem gerðir voru við 85% vinnu­markaðar­ins í fyrra gætu kom­ist í upp­nám.

Þetta má ráða af viðbrögðum aðila vinnu­markaðar­ins í kjöl­far þess að það spurðist út að kostnaður við kenn­ara­samn­ing­ana fyrr­nefndu væri met­inn á allt að 24% yfir fjög­urra ára tíma­bil. Í fyrra náðist sátt á vinnu­markaði með jafn löng­um samn­ingi sem skila átti ríf­lega 14% hækk­un að meðaltali.

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, formaður Efl­ing­ar hef­ur sterka skoðun á stöðunni sem kom­in er upp og er hún gest­ur Spurs­mála að þessu sinni. Einnig heyr­ist þungt hljóð í at­vinnu­rek­end­um en full­trúi þeirra, Sig­ríður Mar­grét Odds­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka at­vinnu­lífs­ins mun setj­ast við Spurs­mála­borðið ásamt Sól­veigu Önnu og greina stöðuna sem er í meira lagi viðkvæm.

Að því loknu mun Helgi I. Jóns­son, fyrr­um hæsta­rétt­ar­dóm­ari ræða við Stefán Ein­ar um fram­kvæmd hinn­ar svo­kölluðu sam­fé­lagsþjón­ustu sem verið hef­ur hluti af refsi­vörslu­kerf­inu hér á landi allt frá ár­inu 1995. Seg­ir hann al­var­leg­ar brota­lam­ir á kerf­inu.

Þá mun Al­bert Jóns­son, fyrr­um sendi­herra og alþjóðamálaráðgjafi for­sæt­is­ráðherra mæta til leiks og ræða stöðuna í Úkraínu­deil­unni og hvað Trump hygg­ist fyr­ir í því afar viðkvæma, og eld­fima máli.

The episode on the publisher’s site (opens in a new tab)

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.