Podcasts · Spursmál

#71. - Sykurpabbar í stuði og ráðherra sakaður um ósannindi

· 1 h 28 min

Episode #71. - Sykurpabbar í stuði og ráðherra sakaður um ósannindi

0:00 1:28:00

Fram­kvæmda­stjóri Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi seg­ir fjár­málaráðherra og at­vinnu­vegaráðherra halda fram ósann­ind­um í fram­setn­ingu sinni á fram­lögðum til­lög­um um hækk­un veiðigjalda.Millj­arðar á millj­arða ofan

Seg­ir hún með ólík­ind­um að ráðherr­arn­ir haldi því fram að út­gerðin muni halda eft­ir óskert­um hlut af hagnaði sín­um eft­ir breyt­ing­arn­ar. Við blasi að það geti ekki verið þegar gjöld eru hækkuð um millj­arða á millj­arða ofan.

Í viðtal­inu fer Heiðrún Lind einnig yfir það hvaða áhrif þess­ar áætlan­ir rík­is­stjórn­ar­inn­ar geta haft á fisk­vinnslu vítt og breitt um landið. Seg­ir hún að verið sé að færa kerfið í átt að því sem gert hef­ur verið í Nor­egi. Þar er fisk­vinnsl­an rík­is­styrkt, hún víða rek­in með tapi og gjaldþrot eru al­geng. Þá er stór hluti afl­ans sem að landi berst send­ur rak­leitt til ríkja á borð við Pól­land og Kína þar sem hann er full­unn­inn.

Ásamt Heiðrúnu var fjölda stjórn­arþing­manna og ráðherra boðið til þátt­töku í umræðunni um vænt­an­leg­ar breyt­ing­ar á auðlinda­gjöld­um í sjáv­ar­út­vegi. Eng­inn þeirra átti hins veg­ar tök á því að mæta til leiks.

Auk Heiðrún­ar Lind­ar mæta í þátt­inn þau Pat­rik Atla­son tón­list­armaður og Tinna Gunn­laugs­dótt­ir, leik­ari, leik­stjóri og fyrr­um þjóðleik­hús­stjóri. Þau ræða frétt­ir vik­unn­ar, Eddu-verðlaun­in þar sem Tinna hlaut heiður­sverðlaun ásamt eig­in­manni sín­um, Agli Ólafs­syni. Þá gaf Pat­rik út nýtt lag í morg­un sem ber hina virðulegu yf­ir­skrift, Syk­urpabbi.

Í lok þátt­ar­ins mæt­ir á svæðið Jón Gunn­ar Jóns­son, fyrr­um for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins. Í liðinni viku voru þrjú ár frá því að ís­lenska ríkið losaði um ríf­lega 50 millj­arða hlut í Íslands­banka í útboði sem átti eft­ir að draga dilk á eft­ir sér. Svo stór­an raun­ar að Bjarni Bene­dikts­son sagði af sér embætti fjár­mála- og efna­hags­ráðherra.

Jón Gunn­ar vill meina að þarna hafi farið fram far­sæl­asta útboð Íslands­sög­unn­ar. En í þætt­in­um er sag­an að baki því rak­in, einnig rætt um nú­ver­andi fyr­ir­ætlan­ir stjórn­valda um að ljúka sölu á eft­ir­stæðum hlut sín­um í Íslands­banka. Þá er Jón Gunn­ar einnig spurður út í at­b­urðarás­ina sem leiddi til þess að Lands­bank­inn keypti trygg­inga­fé­lagið TM í heilu lagi, í trássi við vilja lang­stærsta eig­anda bank­ans, rík­is­sjóðs Íslands.

The episode on the publisher’s site (opens in a new tab)

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.