Podcasts · Spursmál

#75. - Persónunjósnir, líkbrennsla og neyðarbirgðir

· 1 h 30 min

Episode #75. - Persónunjósnir, líkbrennsla og neyðarbirgðir

0:00 1:29:47

Hvað ætluðu út­send­ar­ar Björgólfs Thors að gera með upp­lýs­ing­ar um Vil­hjálm Bjarna­son? Tengd­ist það brenni­víni og kvenna­mál­um? Því svar­ar bíl­stjór­inn á V 279 í Spurs­mál­um í dag.

Með njósn­ara á hæl­un­um

Vil­hjálm­ur hef­ur verið í kast­ljósi fjöl­miðla í vik­unni eft­ir að upp­lýst var að njósn­ar­ar hefðu verið á hæl­um hans um nokk­urra vikna skeið árið 2012. En hver var for­saga máls­ins og í hvaða ill­deil­um stóð Vil­hjálm­ur sem ollu því að hon­um var veitt eft­ir­för og setið var um heim­ili hans?

Sviðsstjóri og for­setafram­bjóðandi

Í frétt­um vik­unn­ar ber þetta furðumál einnig á góma en gest­ir Spurs­mála að þessu sinni í þeim hluta þátt­ar­ins eru þeir Gylfi Þór Þor­steins­son, sviðsstjóri hjá Rauðakross­in­um og Magnús Ragn­ars­son, formaður Tenn­is­sam­bands­ins og nú fram­bjóðandi til embætt­is for­seta Íþrótta- og ólymp­íu­sam­bands­ins.

Nýja tækni þarf við lík­brennslu

Ber ým­is­legt á góma í þeirri umræðu, meðal ann­ars verk­efni sem Rauðikross­inn fer fyr­ir og teng­ist viðbrögðum al­menn­ings ef til neyðarástands kem­ur. Umræðan um þetta verk­efni tók tals­verðan kipp þegar raf­magns­laust varð um gjörv­all­an Spánn og Portúgal með ófyr­ir­séðum af­leiðing­um.

Í lok þátt­ar­ins verður rætt við Sig­ríði Bylgju Sig­ur­jóns­dótt­ur sem fer fyr­ir sjálf­seign­ar­stofn­un­inni Tré lífs­ins. Hef­ur hún ásamt sam­starfs­fólki lengi stefnt að því að byggja upp full­komna og nú­tíma­vædda lík­brennslu hér á landi í stað þeirr­ar sem nú er rek­in af Kirkju­görðum Reykja­vík­ur­pró­fasts­dæma.

Búnaður­inn sem þar er not­ast við stenst eng­ar kröf­ur varðandi meng­un og vill Sig­ríður meina að rétt sé að fela einkaaðilum að byggja nýja aðstöðu í þess­um efn­um.

The episode on the publisher’s site (opens in a new tab)

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.