Podcasts · Spursmál

#60. - Orkuöflun í uppnámi og hallarbyltingar í aðsigi

· 1 h 15 min

Episode #60. - Orkuöflun í uppnámi og hallarbyltingar í aðsigi

0:00 1:14:45

Stefn­ir í hall­ar­bylt­ingu í Fram­sókn­ar­flokkn­um um svipað leyti og Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn vel­ur nýja for­ystu? Ljóst er að alþing­is­kosn­ing­arn­ar 30. nóv­em­ber síðastliðinn draga dilk á eft­ir sér á mörg­um víg­stöðvum, ekki aðeins meðal þeirra flokka sem hrein­lega hurfu út af þingi.

Magnea Gná Jó­hanns­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins rýn­ir í spil­in á stjórn­mála­sviðinu ásamt Elliða Vign­is­syni, bæj­ar­stjóra Ölfuss. Hann hef­ur á síðustu vik­um verið orðaður við embætti for­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins. En hvert stefn­ir hug­ur hans?

Skal virkja eða ekki?

Á sama tíma og allt leik­ur á reiðiskjálfi í póli­tík­inni er allt í upp­námi í orku­heim­in­um vegna Hvamms­virkj­un­ar. Sum­ir fagna dátt meðan aðrir sýta sárt í kjöl­far þess að héraðsdóm­ur komst að þeirri niður­stöðu að Um­hverf­is­stofn­un hefði ekki heim­ild til þess að veita und­anþágu frá vatna­til­skip­un Evr­ópu­sam­bands­ins.

Til þess að ræða þá stöðu sem kom­in er upp í tengsl­um við þessa fyr­ir­huguðu ríf­lega 70 millj­arða fram­kvæmd Lands­virkj­un­ar mæta þeir til leiks, Finn­ur Beck, fram­kvæmda­stjóri Samorku og Snæ­björn Guðmunds­son, formaður Nátt­úrugriða.

The episode on the publisher’s site (opens in a new tab)

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.