Podcasts · Spursmál

Persónunjósnir og aftökur Stóra bróður nútímans - Samtal við Kára Stefánsson um 1984.

· 1 h 28 min

Episode Persónunjósnir og aftökur Stóra bróður nútímans - Samtal við Kára Stefánsson um 1984.

0:00 1:28:20

Hús­fyll­ir var á Vinnu­stofu Kjar­vals á dög­un­um þegar ríf­lega 150 klúbbmeðlim­ir mættu til leiks á þriðja viðburð Bóka­klúbbs Spurs­mála.

Þar sett­ist Kári Stef­áns­son, stofn­andi Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar, niður með Stefáni Ein­ari Stef­áns­syni, ásamt klúbbmeðlim­um, og ræddi efni bók­ar­inn­ar 1984 eft­ir Geor­ge Orwell á hisp­urs­laus­an og líf­leg­an hátt eins og hans er von og vísa.

Viðraði Kári til að mynda hug­mynd­ir um hvar hægt sé að sjá birt­ing­ar­mynd­ir af Stóra bróður í heim­in­um í dag. Er hann sann­færður um að víða glitti í það fyr­ir­bæri með bein­um eða óbein­um hætti.

Bók­in var bók mánaðar­ins í Bóka­klúbbi Spurs­mála í júní­mánuði.

Sjálf­ur las Kári bók­ina fyrst fyr­ir nærri hálfri öld síðan en efni henn­ar hafði áhrif á Kára, eins og fleiri, enda um eina áhrifa­mestu bók 20. ald­ar bók­mennta að ræða. Hef­ur hún frá fyrstu út­gáfu haft mót­andi áhrif á hug­mynd­ir manna um sam­spil rík­is­valds og ein­stak­lings­frels­is sem vel er hægt að heim­færa á sam­tím­ann sem við lif­um nú.

Að mati Kára er bygg­ir saga Orwells á ýkj­um. Raun­ar þykir hon­um sag­an að mörgu leyti frá­leit því hún geng­ur eins langt og hugs­ast get­ur í því að lýsa sam­fé­lagi sem er í helj­ar­greip­um alræðis og svipt sjálf­stæðri hugs­un og frels­inu um leið. Sem í margra eyr­um kann reynd­ar að hljóma kunnu­lega.

Það bar þó margt á góma í sam­tali þeirra Kára og Stef­áns Ein­ars. Má þar helst nefna upp­lif­un hans og reynslu af alræðis­sam­fé­lög­um dags­ins í dag, kór­ónu­veirufar­ald­ur­inn, stjórn­ar­farið í Kína, rík­is­valdið hér á landi og lýs­ing­ar hans af sam­skipt­um sem hann átti við þáver­andi heil­brigðisráðherra, Svandísi Svavars­dótt­ur. Sagði hann að þar hafi stál­in stinn mæst en ein­hverj­ir myndu kannski frek­ar segja að þar hafi skratt­inn hitt ömmu sína - dæmi nú hver fyr­ir sig.

Á annað þúsund manns hafa skráð sig í klúbb­inn á þeim fjór­um mánuðum sem hann hef­ur verið starf­andi og fjölg­ar þar enn. Nú í júlí­mánuði sitja klúbb­fé­lag­ar við og lesa bók Sig­urðar Más Jóns­son­ar, Af­nám haft­anna: samn­ing­ar ald­ar­inn­ar? sem er bók þessa mánaðar á vett­vangi klúbbs­ins. Af því til­efni fæst hún á sér­stöku til­boði í versl­un­um Penn­ans Ey­munds­son.

Hægt er að skrá sig í klúbb­inn með því að smella hér.

Sam­starfsaðilar Bóka­klúbbs Spurs­mála eru Sam­sung, Kerec­is, Brim og Penn­inn.

The episode on the publisher’s site (opens in a new tab)

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.