Podcasts · Health & Fitness

LANGA - hlaðvarp

Snorri Björns

117 episodes

Hlaðvarp um langanir og langar vegalengdir.

Episodes page 2 of 3

  1. Þorsteinn Roy er í besta formi lífs síns

    · 45 min

    Virkilega skemmtileg innsýn inn í haus eins besta hlaupara Íslendinga: Næringarplanið, brautin, vegferðin frá HM í Tælandi til dagsins í dag, valið milli long og short, hröð ultra hlaup og segment hunting í miðju…

  2. Íris Anna & Anna Berglind - báðar með sub5 Laugaveg og tilbúnar í Short Trail

    · 28 min

    Íris og Anna eru báðar búnar að koma sér í toppform fyrir HM 2025. Anna Berglind hefur aldrei æft jafn mikið, vikur upp á 130km og 5000 hæðarmetra – fullt tilefni til enda brautin í ár með þeim erfiðari sem sést hafa.

  3. Upphitun fyrir HM: Tobbi greinir keppnina og árangur Íslendinga

    · 40 min

    Þorbergur Ingi, reynslumesti landsliðsmaður Íslands, sest niður hér í Canfranc og les í stöðuna fyrir Heimsmeistaramótið í utanvegahlaupum sem fer fram næstu helgi.

  4. 60. Gleði vs. árangur, Kenía mætt í UTMB, sigurformúla í ruslið og eru hlaup að breytast í Formúlu 1?

    · 1 h 53 min · S1 E60

    Vænleg yfirferð yfir stærstu utanvegahlaupaveislu ársins: UTMB. Kenía er farin að láta finna fyrir sér í trail-heiminum, með tilheyrandi efasemdum og spurningarmerkjum, er Courtney Dauwalter að taka keppninni of…

  5. 59. Sigrar RM 21,1km og bestur í skíðagöngu - Dagur Benediktsson

    · 1 h 25 min · S1 E59

    Dagur mætti inná skrifstofu til framkvæmdastjóra sjávarútvegsfyrirtækis fyrir 8 árum, þá 20 ára gamall, og lagði fyrir hann áætlun um markmið fyrir glæstan skíðagönguferil sem hann þurfti hjálp við að framkvæma. Í dag…

  6. ÍBR svarar fyrir sig

    · 38 min · S1 E63

    Óánægju gætir innan hlaupasamfélagsins með framkvæmd á Reykjavíkurmaraþoninu, en í fyrsta skipti í 40 ára sögu hlaupsins voru hlauparar ræstir í tveimur flokkum: keppnis- og almennum flokki. Ringulreiðin sem því fylgdi…

  7. 58. Hlynur & Baldvin: RM, maraþonæfingar, single threshold, lyfjapróf og 100km

    · 1 h 40 min · S1 E58

    Hlynur og Baldvin mæta á DURA drykkjarstöðina degi eftir Reykjavíkurmaraþonið til að gera upp viðburðinn, brautarmet Baldvins, vonbrigði Hlyns og allt því sem viðkemur því að skara fram úr í hlaupum - þvert á…

  8. 57. Sprengjur í RM, léleg ITRA stig, maraþon vs. Laugavegur og Andrea vs. Elísa

    · 1 h 49 min · S1 E57

    Við fylgjum eftir viðtölum við Baldvin Þór og Hlyn Andrésson með sjóðheitri umræðu um Reykjavíkurmaraþonið. Viktor Orri mætti á DURA drykkjarstöðina til að ræða möguleika Baldvins og Hlyns til að slá met, Elísu á móti…

  9. 56. Hlynur reynir við hraðasta maraþon á Íslandi

    · 20 min · S1 E56

    Brautarmetið í Reykjavíkurmaraþoninu var sett um það leyti sem Hlynur Andrésson var að fæðast. Hann er búinn að strengja saman góðar æfingavikur og mánuði og er tilbúinn í atlögu að metinu. Hlynur fer hér yfir…

  10. 55. Baldvin Þór í vígahug fyrir RM

    · 20 min · S1 E55

    Hann er ekki hér til þess að taka þátt. Hann er hér til að hlaupa hröðustu 10 kílómetra í Íslandssögunni og hann langar að gera það á Íslandi! Íslandsmetið, sem Baldvin sjálfur á, er 28:51 og hann mætir hingað í settið…

  11. 54. Halli Gilli & Sigfinnur – 100km haus, magaflóran, líkamsklukkan og Laugavegurinn

    · 1 h 32 min

    Haraldur Gísli og Sigfinnur kláruðu Gyðjuna um helgina og komu í stúdíóið til að ræða hlaupið, æfingarnar, motivationið, andlegu áskorunina, magaflóruna (Kilian er kominn á vagninn), líkamsklukku hlauparans og…

  12. 53. Elísa Kristinsdóttir – Viðstöðulausar bætingar, frá 10km upp í 400km

    · 1 h 10 min

    Elísa vann í dag Súlur Vertical Gyðjuna 100km á tímanum 10:45. Hún tekur brautarmetið af Andreu Kolbeinsdóttur og slær það um rúmar 90 mínútur. Óstaðfestar tölur gefa henni hæsta ITRA stig sem íslensk kona hefur náð.…

  13. 52. Hugarfarsbreyting eftir heilaæxli: 50 ára sjómaður verður Íslandsmeistari í hjólreiðum - Þorsteinn Bárðarson

    · 1 h 58 min · S1 E52

    Þorsteinn Bárðarson hefur varið lífi sínu á sjónum. Hann kepptist við að vera aflamestur, fór út í öllum veðrum og tók lengri róðra en hinir með þeim afleiðingum að hann klessti á vegg og þurfti að breyta um lífsstíl…

  14. Andrea Kolbeinsdóttir - Sigurvegari í Laugavegshlaupinu 2025

    · 16 min

    Viðtal við Andreu Kolbeinsdóttur eftir sigur í Laugavegshlaupinu 2025.

  15. Elísa Kristinsdóttir - 2. sæti í Laugavegshlaupinu 2025

    · 15 min

    Viðtal við Elísu Kristinsdóttur eftir Laugavegshlaupið 2025.

  16. Þorbergur Ingi - 2. sæti í Laugavegshlaupinu 2025

    · 20 min

    Viðtal við Þorberg Inga eftir Laugavegshlaupið 2025.

  17. Þorsteinn Roy - Sigurvegari Laugavegshlaupsins 2025

    · 28 min · S1 E51

    Viðtal við Þorstein Roy eftir sigur í Laugavegshlaupinu 2025.

  18. 50. Hvernig vinnuru Laugaveginn?

    · 1 h 44 min · S1 E50

    Sterkasta ráslína sumarsins verður samankomin í virtasta utanvegahlaupi landsins. Hver vinnur? Hvernig? Verður brautarmet slegið? Er 10 ára Íslandsmet Þorbergs Inga í hættu? Er komið að Þorsteini? Á einhver séns í…

  19. 49. Caleb Olson, WSER winner: "How the worst race of my life changed my running forever"

    · 40 min · S1 E49

    “Podium would be way cooler than 5th.” Caleb wrote, after the fastest debut in history at Western States 2024. He made it to the podium this year, and then some. Caleb generously sits down with us just 6 days out from…

  20. 48. Norwegian Method, lágt testósterón, pottur vs. sauna, Kilian Jornet, hjól fyrir hlaup, WSER og not Breaking4 - Guðfinna og Latsi

    · 1 h 58 min · S1 E48

    Guðfinna Kristín og Latsi ræða af manískum áhuga um vísindin, viðburðina og hugmyndafræðina sem ráfar um úthaldsíþróttaheiminn í dag: • Noregur er mættur aftur • The Norwegian Method - uppruni, útskýring og fyrir…

  21. 47. Western States – Það er að sjóða uppúr!

    · 1 h 26 min · S1 E47

    Mest spennandi ultra hlaup síðari ára á sér stað um helgina. Guðfinna kemur í settið til að greina keppnina og segja sögurnar á bakvið sterkustu keppendurna - ásamt ótrúlegri tengingu íslensks afrekshlaupara við…

  22. 46. Nýjar leiðir að árangri: Hitaþjálfun og hákolvetnainntaka – Sigurður Örn Ragnarsson

    · 2 h 12 min · S1 E46

    Siggi TRI er einn besti þríþrautarmaður okkar Íslendinga með manískan áhuga á bætingum. Hann er bæði vísindamaðurinn og tilraunadýrið og í þættinum förum við yfir nýstárlegar leiðir að árangri sem eru að ryðja sér til…

  23. 45. Vinsæll hlaupari vs. góður hlaupari, verðlaun í hlaupum, hitaþjálfun, hver mætir í Laugaveginn? – Egill Örn & Guðlaugur Ari

    · 1 h 49 min · S1 E45

    Smekksneisa í dag. Gulli og Egill mæta sjóðheitir og rjóðir í kinnum eftir hitaþjálfun dagsins. Við gagnrýnum og setjum út á allt frá markaðssetningu hlaupara, línuna á milli vinsælda og getu hlaupara, Bakgarðinum,…

  24. 44. Yngvild Kaspersen - 10 years on top: Highs, lows and lessons.

    · 1 h 09 min · S1 E44

    “Only 20 years old! These guys are the future (and present) of the sport!” said Kilian Jornet, in 2015, about Yngvild Kaspersen and Remi Bonnet - and man was he right. Yngvild quit the Norwegian national soccer team…

  25. 43. Næsta bylting í íþróttum er... íslensk? Frá Harvard til Team Visma, Kilian Jornet og Norska Ólympíusambandsins.

    · 1 h 48 min · S1 E43

    Arnar Lárusson og teymið hans kepptu gegn Boston Dynamics í keppni á vegum DARPA (klikkuðu þróunardeildinni sem leitar að mörkum hins mögulega á vegum bandaríska hersins) um að bæta skilvirkni og orkunotkun…

  26. 42. "Ekki bestur... betri!" – Sigurbjörn Árni Arngrímsson

    · 1 h 19 min · S1 E38

    Ekki bara lýsandinn Sigurbjörn Árni heldur doktorinn í lífeðlisfræði, skólameistarinn og 40x-faldur Íslandsmeistari í hlaupum. Sigurbjörn stundaði verulega áhugaverðar rannsóknir við doktorsnám sitt í Bandaríkjunum.…

  27. Backyard BBQ #3 - Áhugalæknir/atvinnuhlaupari, 200km múrinn, besti Íslendingurinn í Bakgarðinum?

    · 37 min

    Sunnudagur til sælu. Oddur og Mari brjóta 200km múrinn, Egill Trausti fer úr hlaupafötunum yfir í crew-gallann og Andri Guðmunds greinir og veitir góða innsýn í Bakgarðinn. Í boði Hlaupár, Sjóvá, Bodylab, Kia og NOW!

  28. Backyard BBQ #2 – Hálf lungu, „Bjarni Ármanns hættir ekki í stólnum!“, örmögnun og CPH maraþon

    · 28 min

    Bjarni Ármanns kallar þetta gott, Pétur Ívars gefur okkur innsýn í CPH maraþonið (þar sem Andrea gerði atlögu að Íslandsmeti nú í morgun), "Bjarni Ármanns hættir ekki í stólnum", Mari fær orku út úr því að leiða aðra í…

  29. Backyard BBQ #1 - Mari með mækinn, Bjarni Ármanns reiðubúinn í 111 hringi, ketó-bakgarður og Elísabet Margeirs.

    · 30 min

    Sein útsending frá Bakgarðinum! Mari Jaersk stendur undir nafni, Bjarni Ármanns gerir grein fyrir áformum sínum (111 hringir?), Egill Trausti reyndi við Ketó-Bakgarð og Elísabet Margeirs mun taka Bakgarð þegar hún…

  30. 38. Íslandsmet í maraþoni, brautarmet í Puffin, vonbrigði, pressa og næstu sigrar... á eigin forsendum! – Hlynur Andrésson

    · 1 h 13 min · S1 E38

    Sigurvegari Puffin Run og Íslandsmethafi í maraþoni kemur funheitur inn í stúdíóið og ræðir sigurinn í Puffin Run síðustu helgi. Hlynur átti Íslandsmetin frá 3000m upp í maraþon árið 2021 en við ræðum erfiða tíma sem…

  31. Hvernig vinnuru Puffin Run 2025? (Sterkasta utanvegahlaup ársins)

    · 41 min · S1 E37

    Það stefnir í að sterkustu hlauparar landsins mæti á startlínuna í Puffin Run 2025. Þorbergur Ingi kemur með greiningu á hlaupinu: • Hlynur Andrésson er hraðasti hlauparinn, Arnar Pétursson á brautarmetið og Þorsteinn…

  32. Míluðustu menn landsins: Ofurskórnir - eitthvað shady í gangi? „Milage is king,“ London, Boston, 40km túr á bretti og Vorri gegn Ingebrigtsen.

    · 1 h 43 min · S1 E36

    Það eru fáir Íslendingar sem hlaupa jafn marga kílómetra og Guðmundur Magnússon og Viktor Orri Pétursson þessa dagana. Þeir uppskera eins og þeir sá: báðir með maraþon PB í aprílmánuði... eftir að hafa náð maraþon PB…

  33. 35. Afrekslandið heimsótt: beinheilsa & beinmeiðsli, Ingebrigtsen dómsmálið, hitaþjálfun, kolvetni, VLOG og maraþon season.

    · 2 h 13 min · S1 E35

    Ekki trúa neinu sem þú heyrir og bara helmingnum af því sem þú sérð. LANGA hlaðvarp er mætt til Afrekslandsins og fær á hreint, í eitt skiptið fyrir öll, af hverju Norðmenn eru svona góðir í íþróttum. Guðfinna Kristín…

  34. „Ég legg það ekki á mig, fjölskylduna og neinn í kringum mig að við höldum þessu áfram.“ – Hreinskilið uppgjör eins besta þríþrautarmanns Íslands.

    · 1 h 40 min · S1 E34

    Rúnar Örn setti Íslandsmetið í Ironman í fyrstu tilraun árið 2016. Margur myndi áætla að þetta væri gríðarlega ánægjulegt augnablik á ferli Rúnars en það var margt í gangi á bakvið tjöldin sem gerði honum erfitt fyrir…

  35. 33. Andrea & Vignir - pitstop í Kenía á leiðinni að Íslandsmeti

    · 1 h 32 min · S1 E33

    Vignir Már hefur æft hlaup síðan um aldarmótin (á þeim tíma voru hlauparar spurðir hvort þeir „kæmust maraþon“). Hann hefur margsinnis farið til Kenía, mekku langhlaupa, í æfingabúðir en fyrr á árinu fór Andrea…

  36. 32. Geir Ómars - Besti tími Íslendings í Ironman

    · 2 h 32 min · S1 E32

    Geir Ómars ættu allir úthaldsíþróttamenn að þekkja. Hann byrjaði í þríþraut 35 ára gamall, setti sér 5 ára markmið um að keppa í Ironman og setti Íslandsmet í vegalengdinni ári eftir sinn fyrsta járnkarl. Geir er…

  37. 31. Kári Guðmundsson, líffæraþegi og maraþonhlaupari: „Ég hafði ekkert annað en brosið til að fara í gegnum þetta.“

    · 54 min · S1 E31

    Kári Guðmundsson greindist með sykursýki 5 ára gamall. Nýrun í honum gáfust að lokum upp og erfið veikindi tóku við þar sem eina tiltæka orkan var nýtt til að fara fram á baðherbergi, kasta upp og svo aftur uppí rúm.…

  38. 30. Haukur Ingi: Markmiðasetning, hraðari framfarir, þægindaramminn, samanburður, sjálfstal og hugsanir fyrir árangur.

    · 1 h 54 min · S1 E30

    Haukur Ingi Guðnason er sáfræðimenntaður, fyrrum leikmaður Liverpool og kennir íþróttasálfræði við HÍ. Í þættinum förum við yfir aðferðir sem hægt er að nýta sér til að hámarka eigin árangur, hvort sem það er í…

  39. 29. Færri kaloríur, minni árangur? Birna Varðar: REDs og orkuskortur í íþróttum

    · 1 h 03 min · S1 E29

    Það er erfitt að blanda saman líkamssamsetningu, tölunni á vigtinni, frammistöðu í keppni, bætingum á æfingum, andlegri líðan og almennri heilsu. Orkuinntaka tengist öllum þessum breytum á einn eða annan hátt og Birna…

  40. 28. Hafsteinn Ægir - 25 ára keppnisreynsla: „Djöfull eruði að missa af miklu“

    · 1 h 50 min · S1 E28

    Hafsteinn fór á tvenna Ólympíuleika í siglingum og hóf síðan keppnisferil í hjólreiðum. Reynslan drýpur af honum eftir rúmlega tvo áratugi af keppnisíþróttum á hæsta stigi og það er mikið hægt að læra af 45 ára…

  41. 27. „Ég hleyp af því ég get það" - Gunnar Ármannsson og hugarfarið í langhlaupum, veikindum og ástvinamissi.

    · 1 h 38 min · S1 E27

    Gunnar hefur hlaupið 62 maraþon, hann er með sub3 undir beltinu og á þriðja besta tíma Íslendings í 100km hlaupi þrátt fyrir að hafa nokkrum árum áður fengið að vita að hann eigi nokkrar vikur eftir ólifað. Gunnar…

  42. 26. Gunnar Páll, þjálfari þriggja Ólympíufara: "Þetta er það skemmtilegasta sem ég geri."

    · 2 h 00 min · S1 E26

    “Menn eiga kannski einhverjar afrekaskrár í félögunum en það var bara verið að lesa heimsafrekaskrána, það var ekkert öðruvísi. Menn bara litu á hver er bestur í heiminum? Þangað ætlum við að stefna.” Gunnar Páll…

  43. 25. Að sigra sjálfan sig - Gunnlaugur Júlíusson

    · 2 h 02 min · S1 E25

    Gunnlaugur fór frá því að að vera reykjandi skrifstofumaður yfir í að ryðja braut ultrahlaupa á Íslandi. Vegferð hans er tilviljunum háð en Gunnlaugur hljóp ekki sitt fyrsta maraþon fyrr en hann var 48 ára gamall. Þar…

  44. 24. Arnar Pétursson - bætingar, heimsmet, persónuleg met og erfiðustu hlaupin á ferlinum

    · 2 h 12 min · S1 E24

    Arnar Pétursson: brautarhlauparinn, götuhlauparinn, ultrahlauparinn, hlaupaþjálfarinn og faðirinn (með kennsluréttindi). Hér ræðum við bætingar þvert á allar keppnisvegalengdir, erfiðustu keppnisvegalengdirnar,…

  45. 23. Martröð allra Íslandsmeta: Baldvin Þór Magnússon

    · 1 h 23 min · S1 E23

    2024 var viðburðarríkt ár hjá besta hlaupara landsins. Fyrri hluti ársins fór í að slá nokkur Íslandsmet (þmt. 44 ára gamalt Íslandsmet) en seinni hluti ársins litaðist af vonbrigðum af því að komast ekki inn á EM og…

  46. 22. Ágústa Edda Björnsdóttir

    · 1 h 34 min · S1 E22

    Í þættinum er kíkt undir húddið og komist að því hvað íþróttafólk þarf til að ná árangri. Ágústa veit sitt hvað um málið enda spannar ferillinn fimleika, handbolta, hjólreiðar og nú hlaup. Ágústa lék 62…

  47. Fulla ferð: Fyrirtækjarekstur, fjögur börn og langhlaup - Íris Anna & Sigurgísli

    · 1 h 28 min · S1 E21

    Íris Anna og Sigurgísli deila miklum metnaði fyrir langhlaupum en þetta áhugamál þeirra þarf að deila klukkutímunum í sólarhringnum með 6 manna heimili og fyrirtækjarekstri. Íris er sjálf á sínum 'öðrum hlaupaferli' en…

  48. Áratugir af ultra - feðgin Þóra Bríet og Pétur Helgason

    · 1 h 31 min · S1 E20

    Pétur Helgason er flestum Íslendingum kunnugur sem maðurinn í kraftgallanum með gjallarhornið í Powerade hlaupunum. Hann hefur haldið hlaupið sleitulaust síðan um aldamótin og á sjálfur 30 ára hlaupaferil, með sub3…

  49. 19. Hvað borða ég til að bæta mig? Næring fyrir æfingar og keppnir - Lilja hjá Nutreleat

    · 1 h 24 min · S1 E19

    Hvað borða ég sem íþróttamaður og hvort á ég að hámarka fitubrennsluna eða auka kolvetnabrunann fyrir næstu keppni? Lilja hjá Nutreleat kemur og fræðir okkur um fitubrennslu, líkamssamsetningu, frammistöðu,…

  50. 18. Andlega tilbúin í IronMan... og krabbamein - Kata Páls

    · 1 h 39 min · S1 E15

    Kata Páls áttaði sig á því að hún yrði að vera andlega sterk ef hún ætlaði sér að komast til Kona á heimsmeistaramótið í IronMan. Langar vetraræfingar á Vestfjörðum og 'heilaæfingar' alla morgna klukkan 5 bjuggu til…

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.