Podcasts · LANGA - hlaðvarp

„Ég legg það ekki á mig, fjölskylduna og neinn í kringum mig að við höldum þessu áfram.“ – Hreinskilið uppgjör eins besta þríþrautarmanns Íslands.

· 1 h 40 min · S1 E34

Episode „Ég legg það ekki á mig, fjölskylduna og neinn í kringum mig að við höldum þessu áfram.“ – Hreinskilið uppgjör eins besta þríþrautarmanns Íslands.

0:00 1:39:52

Rúnar Örn setti Íslandsmetið í Ironman í fyrstu tilraun árið 2016. Margur myndi áætla að þetta væri gríðarlega ánægjulegt augnablik á ferli Rúnars en það var margt í gangi á bakvið tjöldin sem gerði honum erfitt fyrir að vera stoltur af sjálfum sér. Næstu tvö árin voru svo mikill rússíbani að Rúnar tók þá ákvörðun að hætta frekar í íþróttinni en halda áfram að reyna. Það kemur fljótt í ljós í þessu viðtali að Rúnar er einstaklega hreinskilinn og einlægur í sinni frásögn og hikar ekki við að tala um allar hliðar þess að hætta í vinnunni og fórna tíma með fjölskyldu og vinum til að ná lengra í íþróttinni sinni.

Við ræðum um:

• Hugrekkið sem þarf til þess að taka fyrsta skrefið í átt að stórum markmiðum. • Hvað verður um þá sem ná ekki stóru markmiðunum. • Glansmyndina þegar vel gengur • Ákvörðunina að hætta í vinnunni til þess að gefa allt í íþróttina. • Sætustu sigrana og dýfuna og sjálfsniðurrifið sem fylgdi því að hætta í miðri keppni. • Vinnan og hjálpin sem hann fékk til að ná sér upp aftur. • Hvernig það fjaraði undan gleðinni þegar Rúnar fór að æfa einn. • Augnablikin (í fleirtölu) þegar hann vissi að nú væri kominn tími til að hætta.

„Fyrir hvert eitt skipti sem við sjáum glansmyndina þá eru miklu fleiri svona móment – þar sem einhver lét vaða og það gekk ekki upp. Það ratar ekki alltaf á Instagram, flestir bara loka hurðinni og hverfa. Það er líka bara hollt að tala um það því það er alveg jafn mikið afrek. Afrekið er að þora að láta vaða, það er bara bónus ef það gengur upp. Hugrekkið er að taka fyrsta skrefið.“

Grein Rúnars um ferðalagið til Kona sem var kveikjan að þessu viðtali.

The episode on the publisher’s site (opens in a new tab)

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.