Podcasts · Spursmál

#55. - Valkyrjustjórn og hryllingur hversdagsleikans

· 1 h 11 min

Episode #55. - Valkyrjustjórn og hryllingur hversdagsleikans

0:00 1:10:37

Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi alþing­ismaður og ráðherra, er gest­ur Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar í nýj­asta þætti Spurs­mála.

Líkt og þekk­ist hef­ur Björn viður­hluta­mikla þekk­ingu og reynslu á hinu póli­tíska sviði. Í þætt­in­um spá­ir hann í þær stjórn­ar­mynd­un­ar­viðræður sem nú standa yfir á meðal Sam­fylk­ing­ar, Viðreisn­ar og Flokks fólks­ins og hvers megi vænta af því sem fram­vind­ur í viðræðunum.

Ýmis hags­muna­mál þjóðar­inn­ar eru und­ir í þeim efn­um en haft er eft­ir for­manni Viðreisn­ar, og mögu­leg­um næsta for­sæt­is­ráðherra, að slæm af­koma rík­is­sjóðs hafi gert viðræðurn­ar vanda­sam­ari en ella þrátt fyr­ir að al­mennt ríki samstaða á milli formanna flokk­anna þriggja; Kristrúnu Frosta­dótt­ur, Þor­gerðar Katrín­ar Gunn­ars­dótt­ur og Ingu Sæ­land. Hafa þær ít­rekað látið hafa eft­ir sér að viðræðunum miði vel og að von­ir standi til um að mynd­un nýrr­ar rík­is­stjórn­ar tak­ist fyr­ir jól.

Einnig verður rætt við Björn um stöðuna sem nú rík­ir úti í heimi. Verða nýj­ustu vend­ing­ar í átök­un­um í Úkraínu og Sýr­landi til umræðu og mat lagt á stöðuna þar í tengsl­um við póli­tískt umrót sem stríðsátök­um fylg­ir.

Fá hár­in til að rísa

Auk Björns mæta til leiks rit­höf­und­arn­ir Ragn­ar Jónas­son og Yrsa Sig­urðardótt­ir og rýna helstu frétt­ir í líðandi viku. Þar er á nógu að taka að vanda bæði hér heima en ekki síður er­lend­is frá. Morðið á for­stjóra eins stærsta sjúkra­trygg­inga­fyr­ir­tæk­is Banda­ríkj­anna hef­ur verið í há­mæli í vik­unni. Ekki er ólík­legt að fær­ustu glæpa­sagna­höf­und­ar lands­ins, þó víðar væri leitað, myndu vilja tjá sig um all­an þann hryll­ing sem dag­lega ger­ist í raun­heim­um og hugs­an­lega get­ur orðið kveikj­an að þeirra skáld­skap í ein­hverj­um til­fell­um.

The episode on the publisher’s site (opens in a new tab)

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.