#52. - Ófyrirleitin umræða og reynsluboltar rýna í stöðuna
· 58 min
Episode #52. - Ófyrirleitin umræða og reynsluboltar rýna í stöðuna
Geir Haarde, fyrrum forsætisráðherra, rýnir í stöðuna í stjórnmálunum nú þegar innan við sólarhringur er í að kjörstaðir opni. Honum til fulltingis er Björt Ólafsdóttir, fyrrum ráðherra sem hefur ýmsa fjöruna sopið í pólitíkinni, meðal annars óvænt stjórnarslit árið 2017.
Örlagadagarnir gerðir upp
Í þættinum er Geir einnig spurður út í nýja ævisögu sem hann hefur gefið út. Þar fjallar hann meðal annars um örlagadagana í október 2008 þar sem hann leiddi þjóðina í gegnum einn mesta ólgusjó sem brotið hefur á samfélaginu fyrr og síðar. Hvernig var Geir innanbrjósts þegar hann ávarpaði þjóðina og bað Guð að blessa Ísland?
Í síðari hluta þáttarins mæta stöllurnar Ólöf Skaftadóttir og Kristín Gunnarsdóttir. Þær halda úti hlaðvarpinu Komið gott, og þær eru þekktar fyrir hispurslausa umræðu og vægðarleysi gagnvart því fólki sem er til umfjöllunar hverju sinni. Hver veit nema þær snúi taflinu við á vettvangi Spursmála.
Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.