Podcasts · Spursmál

#.48 - Sparkað í franska ostagerðamenn

· 1 h 28 min · Episode 48

Episode #.48 - Sparkað í franska ostagerðamenn

0:00 1:27:36

Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son formaður Miðflokks­ins situr fyr­ir svör­um í leiðtoga­spjalli und­ir stjórn Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar í nýj­asta þætti Spurs­mála.

Flokk­ur Sig­mund­ar Davíðs hef­ur verið í sókn að und­an­förnu og nú hef­ur hann, líkt og aðrir, kynnt odd­vita í hverju kjör­dæmi ásamt fram­boðslist­um.

Hvert stefni Sig­mund­ur ef niðurstaða kosn­inga verður með þeim hætti sem kann­an­ir gefa til kynna? Sér hann sam­starfs­flöt við aðra flokk og hvar er hann reiðubú­inn að gefa eft­ir?

Auk Sig­mund­ar mættu þau Erna Mist Yama­gata, lista­kona og pistla­höf­und­ur, sem sit­ur í 9. sæti á fram­boðslista Viðreisn­ar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, og Her­mann Nökkvi Gunn­ars­son, blaðamaður á Morg­un­blaðinu og sér­fræðing­ur í banda­rísk­um stjórn­mál­um, í settið til að fara yfir það sem er efst á baugi á hinu póli­tíska sviði hér­lend­is og er­lend­is.

Líkt og und­an­farna föstu­daga mætti Andrés Magnús­son, full­trúi rit­stjóra Morg­un­blaðsins, til leiks og fór yfir nýj­ustu töl­ur úr skoðana­könn­un Pró­sents í þætt­in­um og varpaði ljósi á fylgi flokk­anna sem bjóða fram á landsvísu.

The episode on the publisher’s site (opens in a new tab)

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.