#466 – Kaffispjall með Ingva Þór og Helga Frímannssyni – Ölgerðin fær gula spjaldið – Markaðurinn hikstar en horfir til betri tíma
· 1 h 05 min · S1 E466
Episode #466 – Kaffispjall með Ingva Þór og Helga Frímannssyni – Ölgerðin fær gula spjaldið – Markaðurinn hikstar en horfir til betri tíma
Ingvi Þór Georgsson, framkvæmdastjóri Aflamiðlunar, og Helgi Frímannsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum, ræða um stöðuna í atvinnulífinu og á fjármálamarkaði. Gestirnir rýna í stöðu Ölgerðarinnar, ástæður þess að ráðist var í húsleit hjá félaginu fyrir helgi og tilraunir til útrásar með Collab, sem hefur reynst erfiðari en vonir stóðu til. Þá er einnig fjallað um loðnumælingar Hafró og möguleg áhrif hennar á hagkerfið, hik í sjávarútvegi til að fjárfesta í kjölfar skattahækkunar í fyrra, stöðuna á hlutabréfamarkaði eins og hún blasir við núna, hvernig horfurnar kunna að vera með nýjum félögum á markað og fleira.
Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.