Podcasts · Society & Culture

Þjóðmál

Þjóðmál

300 episodes · Explicit

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Episodes page 1 of 6

  1. #470 – Kaffispjall með Birni Jóni – Veraldavafstur nú og áður

    · 1 h 05 min · S1 E470

    Björn Jón Bragason, sagnfræðingur og lögfræðingur, ræðir nýjustu bók sína Veraldavafstur, þar sem fjallað er um sögu feðganna Sveins B. Valfells og Sveins Valfells í umróti 20. aldar. Við fjöllum um sögu frumkvöðla sem…

  2. #469 – Helgarvaktin með Stefáni Einar og Þórði Gunnars – Frelsisbollinn mættur og formaðurinn fer í frí

    · 1 h 34 min

    Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson á líflega Helgarvakt Þjóðmála þar sem rætt er um stóru málin. Rætt er um vandræði Viðreisnar sem mögulega eiga eftir að verða fleiri, stöðu ríkisstjórnarinnar, frí…

  3. #468 – Kaffispjall með Jóni Gnarr – Ekki í boði að sitja og þegja

    · 2 h 08 min · S1 E468

    Jón Gnarr mætir í ítarlegt og persónulegt kaffispjall um pólitíska vegferð sína og hugmyndafræði. Jón rýnir í ákvörðun sína um að segja sig úr þingflokki Viðreisnar, svarar spurningum um það hvort að flokkurinn sé yfir…

  4. #467 – Helgarvaktin með Jens Garðari og Konráð Guðjóns – Enginn veit hvaða lag verður samið á morgun

    · 1 h 47 min · S1 E467

    Jens Garðar Helgason og Konráð S. Guðjónsson mæta í líflegt samtal um stjórnmálin, efnahagsmálin og áskoranir í atvinnulífinu. Í upphafi er slegið á létta strengi með tónlist og eðalveitingum ásamt því að vekja athygli…

  5. #466 – Kaffispjall með Ingva Þór og Helga Frímannssyni – Ölgerðin fær gula spjaldið – Markaðurinn hikstar en horfir til betri tíma

    · 1 h 05 min · S1 E466

    Ingvi Þór Georgsson, framkvæmdastjóri Aflamiðlunar, og Helgi Frímannsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum, ræða um stöðuna í atvinnulífinu og á fjármálamarkaði. Gestirnir rýna í stöðu Ölgerðarinnar,…

  6. #465 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Ólöfu Skafta – Erfitt að verðmeta það sem ekki verður

    · 2 h 03 min · S1 E465

    Stefán Einar Stefánsson og Ólöf Skaftadóttir mæta í líflegt samtal um heitustu málin – og sitthvað annað. Rætt er um kjarasamningana, leikþátt VR, opinbera starfsmenn sem bíða á kantinum, stýrivexti, heimskulegar…

  7. #464 – Kaffispjall með Birni Bjarnasyni – Heimsókn úr Vesturheimi og brothætt staða ríkisstjórnarinnar

    · 1 h 10 min · S1 E464

    Björn Bjarnason mætir í samtal um stóru málin í utanríkis- og innanlandspólitíkinni. Við fjöllum meðal annars um heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í dag og mikilvægi samstarfs þjóðanna og…

  8. #463 – Helgarvaktin með Andrési og Birni Inga – Bara brosa og slappa af

    · 1 h 40 min · S1 E463

    Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson fara yfir heitu málin og pólitíska hausthrollinn. Rætt er um ummæli fjármálaráðherra um að heimili eigi að þola sársaukann, þingmenn sem rjúka út í fússi af fundum með…

  9. #462 – Kaffispjall með Jóhanni Má í Wolt

    · 1 h 04 min · S1 E459

    Jóhann Már Helgason, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi, ræðir um innreið tæknifyrirtækisins á íslenskan markað, deilihagkerfið og röskun á vinnumarkaði auk þess sem hann svarar gagnrýni verkalýðsfélaga og fjölmiðla um…

  10. #461 – Helgarvaktin með Hildi Sverris og Erni – Spilaborgin að hrynja

    · 1 h 58 min · S1 E461

    Hildur Sverrisdóttir og Örn Arnarson mæta á skemmtilega helgarvakt þar sem stjórnmálin, vinnumarkaðurinn og efnahagsmálin eru krufin til mergjar. Pólitíkin tekur fljótt yfir þar sem gestirnir rýna í nýjustu átökin…

  11. #460 – Kaffispjall með Gunnari Baldvinssyni – Mikið unnið með fjárhagslegu sjálfstæði

    · 43 min · S1 E460

    Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins, mætir í gott spjall um nýútkomna og endurbætta útgáfu af bók sinni, Farsæl skref í fjármálum. Bókin, sem er lokahuti í þriggja bóka röð ætlaðri…

  12. #459 – Helgarvaktin með Árna Helga og Lilju Alfreðs – Vindurinn virkjaður, í logni

    · 1 h 52 min · S1 E459

    Árni Helgason og Lilja Dögg Alfreðsdóttir mæta í líflegt og beinskeytt samtal um stóru málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Við ræðum um vindorkuverk sem var ræst í blankalogni, pirraðan fjármálaráðherra og óraunhæf…

  13. #458 – Kaffispjall með Óla Birni – Hamrað á grunnhugmyndum hægri manna

    · 1 h 26 min · S1 E458

    Óli Björn Kárason ræðir um helstu hugmyndir hægri manna um frjálsan markað, minni ríkisafskipti og öflugt einkaframtak í kjölfar útgáfu á nýrri bók sinni, Villigötur valdsins. Í þættinum er meðal annars rætt um það…

  14. #457 – Helgarvaktin með Ásdísi Kristjáns og Herði – Það þarf alvöru verkfæri ef það á að laga eitthvað

    · 1 h 33 min · S1 E457

    Ásdís Kristjánsdóttir og Hörður Ægisson ræða fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, boðaðar skattahækkanir, leikþáttinn við kynningu frumvarpsins, líkurnar á því að rekstur ríkissjóðs komist yfir núllið og falleinkunn…

  15. #456 – Kaffispjall með Sigurði Má – Farið yfir sviðið í evrópskum stjórnmálum

    · 1 h 13 min · S1 E456

    Sigurður Már Jónsson blaðamaður ræðir um pólitíska stöðu og horfur innan ríkja í Evrópu. Við rýnum í þróunina í Þýskalandi og Frakklandi - tveimur áhrifamestu ríkjum innan ESB - og hvernig innri krísur í þessum…

  16. #455 – Helgvarvaktin með Heiðari Guðjóns og Sigríði Andersen – Raunveruleikinn bankar á dyrnar

    · 1 h 37 min · S1 E455

    Heiðar Guðjónsson og Sigríður Á. Andersen mæta á helgarvaktina og fara yfir eftirmála þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðild að ESB, kröfur um rannsóknir á úrslitunum, viðbrögð þeirra sem lutu í lægra haldi, starfsemi Rúv…

  17. #454 – Miðnæturspjall með Stefáni Einari og Andrési – Jáið er dáið, næsta mál

    · 2 h 02 min · S1 E454

    Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson rýna í niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu, ósigur ríkisstjórnarinnar í málinu, stöðu einstakra ráðherra að lokinni, hvað lesa skuli i mikla…

  18. #453 – Helgarvaktin með Þórði Páls og Orra Hauks – Þetta er alveg að verða búið

    · 1 h 47 min · S1 E453

    Þórður Pálsson, efnahagsráðgjafi Þjóðmála, og Orri Hauksson mæta í líflegan þátt þar sem efnahagsmálin og stjórnmálin eru í brennidepli. Þeir rýna í nýja könnun Viðskiptablaðsins, þar sem yfirgnæfandi meirihluti telur…

  19. #452 – Kaffispjall með Stefáni Einari og Þórði – ESB mun vilja hagnaðinn af Landsvirkjun

    · 1 h 01 min · S1 E452

    Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson mæta í líflegt samtal þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan um aðild að Evrópusambandinu og orkumálin eru í brennidepli. Við rifjum upp vel heppnað bjórkvöld Þjóðmála á Selfossi,…

  20. #451 – Maraþonþáttur IV – Epic útgáfa

    · 4 h 36 min · S1 E451

    Fjórði maraþonþáttur Þjóðmála er mættur á allar helstu veitur og á Youtube. Gestir þáttarins eru Hörður Ægisson, Lárus Welding, Björt Ólafsdóttir, Örn Arnarson, Konráð S. Guðjónsson, Arnar Þór Stefánsson, Andrés…

  21. #450 – Kaffispjall á Te & kaffi með Alberti Jónssyni

    · 1 h 08 min · S1 E450

    Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, ræðir um utanríkismál og mögulegar aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu í sérstökum aukaþætti Þjóðmála. Albert færir rök fyrir því að sérstaða Íslands útiloki í reynd…

  22. #449 – Kaffispjall með Trausta Hjálmarssyni – Bændur eru búnir að kíkja í pakkann

    · 58 min · S1 E449

    Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, mætir í efnismikið og upplýsandi spjall um stöðu og framtíð íslensks landbúnaðar. Trausti rýnir í nýútkomna skýrslu um afleiðingar mögulegrar ESB-aðildar Ísland og litlar…

  23. #448 – Helgarvaktin með Snorra Mássyni og Diljá Mist – Þjóðmál boða til þjóðfundar

    · 2 h 21 min · S1 E448

    Snorri Másson og Diljá Mist Einarsdóttir mæta í líflegt spjall um heitustu málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Við ræðum um komandi viðburði Þjóðmála á Selfossi og í Háskólabíói, rýnt er í væntanlega…

  24. #447 – Kaffispjall með Eddu Hermanns

    · 52 min · S1 E447

    Edda Hermannsdóttir, forstjóri Apótekarans, fer yfir stóru stefnubreytinguna og endurmörkunina úr Lyf og heilsu yfir í Apótekarann, stafræna vegferð og hvernig ásýnd apóteka er að breytast í takt við erlenda strauma.…

  25. #446 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði – Er skaðinn skeður?

    · 1 h 38 min · S1 E446

    Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir heitustu málin í skugga þess að almyrkvi á sól er framundan. Strákarnir rifja upp vel heppnað golfmót Þjóðmála sem fram fór í gær og bjórkvöld Þjóðmála um…

  26. #445 – Brekkusöngurinn með Heiðari Guðjóns og Agnari Möller – Hægri menn eiga alltaf að vera bjartsýnir

    · 1 h 38 min · S1 E445

    Heiðar Guðjónsson og Agnar Tómas Möller mæta í léttan en efnismikinn þátt fyrir verslunarmannahelgina. Við ræðum allt milli himins og jarðar, í bókstaflegri merkingu. Rætt er um komandi almyrkva og þar er átt við…

  27. #444 – Kaffispjall með Adda í Gunnbjarnarholti

    · 55 min · S1 E444

    Þórður Gunnarsson ræðir við Arnar Bjarna Eiríksson, bónda og athafnaskáld í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Arnar Bjarni varpar ljósi á áskoranir og tækifæri í íslenskum landbúnaði og deilir sýn sinni á…

  28. #443 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Erni Arnarsyni – Treystum þjóðinni, en samt ekki

    · 1 h 58 min · S1 E443

    Sigríður Á. Andersen og Örn Arnarson fara yfir í heitustu málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Fjallað er um vandræði Þorgerðar Katrínar og upplýsingaóreiðu síðustu vikna, leyndarhyggjuna sem ríkir um komandi…

  29. #442 – Kaffispjall með Láru Herborgu – Ekkert óvænt í pakkanum sem margir vilja skoða

    · 52 min · S1 E442

    Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður flutti áhugavert ávarp á upphafsfundi Áfram Ísland fyrr í þessum mánuði. Þar fjallaði hún meðal annars um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu út frá sjónarhorni lögfræðinnar og…

  30. #441 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Mjólk er góð (og ódýr)

    · 1 h 50 min · S1 E441

    Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða stóra „mjólkurmálið“ og 60% reikningsskekkju varaborgarfulltrúa Viðreisnar, auk þess sem rýnt er í viðbrögð Þorgerðar Katrínar við fréttaflutningi af umræðum í hollenska…

  31. #440 – Kaffispjall við Sigurð Hannesson – Við getum verið bjartsýn fyrir framtíðinni

    · 1 h 08 min · S1 E440

    Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ræðir um tækifærin og framtíðina hér á landi, hvernig hægt er að styðja helstu atvinnuvegi landsins enn frekar, hvað þarf til að bæta samkeppnishæfni Íslands í…

  32. #439 – Helgarvaktin með Herði og Sólveigu Önnu – Sósíalisti í hlýju auðvaldssinna

    · 2 h 03 min · S1 E439

    Hörður Ægisson og Sólveig Anna Jónsdóttir mæta á helgarvaktina og fara yfir stóru málin. Við ræðum um skeikula ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar, vaxandi andstöðu við hana og upphafsfund „Áfram Ísland“ þar sem Sólveig…

  33. #438 – Kaffispjall með Kristján Inga – Atvinnulífið þarf að hlaupa hraðar í gervigreindarkapphlaupinu

    · 1 h 18 min · S1 E438

    Kristján Ingi Mikaelsson ræðir um það hvernig gervigreind er að umbylta viðskiptalífinu, hvernig stjórnendur þurfa að líta á gervigreind sem viðskiptalega stefnumótun og nýja tekjustrauma en ekki bara tækniverkefni,…

  34. #437 – Helgarvaktin með Bergþóri og Önnu Hrefnu – Bestu kveðjur vestur um haf

    · 1 h 21 min · S1 E437

    Þórður Gunnarsson stýrir Helgarvaktinni að þessu sinni og fær til sín Bergþór Ólason og Önnu Hrefnu Ingimundardóttur til að fara yfir stóru málin. Við ræðum um 250 ára afmæli Bandaríkjanna, fylgi flokkanna hér á landi,…

  35. #436 – Kaffispjall með Birni Bjarnasyni – Þegar setja þarf hluti í samhengi

    · 1 h 12 min · S1 E436

    Björn Bjarnason kann að setja hlutina í samhengi og það gerir hann reglulega hér í Þjóðmálum. Í þætti dagsins ræðir Björn um stöðuna í íslenskum stjórnmálum, villandi umræðu um ESB-umsóknina sem kosið verður um í…

  36. #435 – Helgarvaktin með Andrési og Birgi Ármanns – Stærsta syndin í pólitík er að vera leiðinlegur

    · 2 h 02 min · S1 E435

    Andrés Magnússon og Birgir Ármannsson rýna atburðarrás vikunnar. Við ræðum meðal annars um afsögn Keir Starmer í Bretlandi, sem kallar á spurningar um það hvort hann sé enn innblástur fyrir íslenska forsætisráðherrann…

  37. #434 – Kaffispjall – Gunnar Baldvinsson ræðir um íslenska lífeyriskerfið í samanburði við þau evrópsku

    · 56 min · S1 E434

    Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins, ræðir lífeyriskerfið hér á landi í samanburði við það evrópska. Tilefnið er nýleg greining viðskiptatímaritsins The Economist þar sem fjallað er…

  38. #433 – Helgarvaktin með Andreu og Tómasi Þór – Til hamingju með daginn konur og Össur

    · 1 h 57 min · S1 E433

    Andrea Sigurðardóttir og Tómas Þór Þórðarson fara yfir sviðið eftir að Þjóðhátíðargolfmóti Þjóðmála á Írlandi lauk með glæsibrag. Við ræðum um lokahnykkinn á Alþingi og stöðuna í stjórnmálunum, stjórnmálamenn sem…

  39. #432 – Í beinni frá Írlandi – Þórður Pálsson og Glúmur Björnsson ræða málin á meðan aðrir spila golf

    · 1 h 18 min · S1 E432

    Þórður Pálsson og Glúmur J. Björnsson mæta hressir til leiks, en þátturinn er að þessu sinni tekinn upp í einstöku umhverfi á Carton House á Írlandi þar sem Þjóðhátíðargolfmót Þjóðmála fer fram í samstarfi við GB…

  40. #431 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði – Þeir vita sem vita

    · 2 h 04 min · S1 E431

    Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir heitustu málin. Við ræðum nýafstaðna vorferð Þjóðmála norður í land og komandi golfmót á Írlandi, nýja könnun sem gerð var fyrir Þjóðmál um viðhorf fólks gagnvart…

  41. #430 – Kaffispjall með Birni Berg og Ellerti Hlöðvers – Við erum þrátt fyrir allt með sterkt hagkerfi

    · 1 h 00 min · S1 E430

    Björg Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi og Ellert Hlöðversson, fjármálastjóri Íslandsbanka, ræða peningalega hegðun Íslendinga, fjárfestingar og stöðuna í efnahagslífinu. Í þættinum er rýnt í sveiflur á innlenda…

  42. #429 – Helgarvaktin með Árna Helgasyni og Ólöfu Skaftadóttur – Hvað segir Jónas um ESB-bröltið?

    · 1 h 56 min · S1 E429

    Árni Helgason og Ólöf Skaftadóttir fara yfir helstu vendingar síðustu daga. Við ræðum afsögn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, afnám jafnlaunavottunar og mikilvægi þess að taka stundum slaginn við kerfið, þróun…

  43. #428 – Aukaþáttur – Áslaug Arna kveður stjórnmálin

    · 53 min · S1 E428

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ræðir í aukaþætti Þjóðmála þá óvæntu ákvörðunar sína að láta af þingmennsku og kveðja vettvang stjórnmálanna eftir að hafa helga líf sitt stjórnmálum síðastliðinn áratug. Áslaug Arna rekur…

  44. #427 – Kaffispjall – Hörður og Þorbjörn Atli fara yfir stöðuna

    · 1 h 33 min · S1 E427

    Hörður Ægisson og Þorbjörn Atli Sveinsson ræða þá stöðu sem hefur á liðnum misserum teiknast upp í íslensku viðskiptalífi. Við kryfjum stöðu Oculis og það hvort að íslenski markaðurinn höndli vaxtarfyrirtæki í þeirri…

  45. #426 – Helgarvaktin með Andrési og Erni – Það er hægt að hafa gaman án þess að tvöfalda embættismannakerfið

    · 1 h 35 min · S1 E426

    Andrés Magnússon og Örn Arnarson ræða um nýjan meirihluta í Reykjavík og blendnar tilfinningar hægri manna til samstarfsins við Viðreisn og Framsókn, auk þess sem rætt er um áform um sölu á Ljósleiðaranum og Carbfix.…

  46. #425 – Kaffispjall – Ásgeir Baldurs og Bjarnheiður Hallsdóttir ræða um ferðaþjónustuna og stöðu hennar

    · 1 h 00 min · S1 E425

    Ásgeir Baldurs og Bjarnheiður Hallsdóttir rýna í stöðuna og framtíðarhorfur í íslenskri ferðaþjónustu fyrir komandi sumar. Í spjallinu fara þau yfir helstu áskoranirnar sem greinin stendur frammi fyrir, allt frá…

  47. #424 – Helgarvaktin með Orra Hauks og Þórði Pálssyni – Stýrihópur um vinnuhóp um aðgerðaráætlun ... í haust

    · 1 h 38 min · S1 E424

    Orri Hauksson og Þórður Pálsson rýna í nýjustu vendingar í efnahags- og stjórnmálum. Við ræðum um vaxtahækkun og trúverðugleika peningastefnunnar, líkur á því að kjarasamningar bresti, stöðuna í hagkerfinu, þá sem…

  48. #423 – Kaffispjall með Sigmundi Davíð

    · 1 h 23 min · S1 E423

    Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fer yfir stöðuna í íslenskum stjórnmálum í kjölfar nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga, hvar tækifærin liggja og hvernig flokkarnir standa á nýju pólitísku landslagi skautun í…

  49. #422 – Aukaþáttur – Stefán Einar og Þórður kryfja kosningarnar – Kristún reif upp sverðið en tapaði

    · 1 h 14 min · S1 E422

    Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson rýna í og greina með ítarlegum hætti niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna sem fram fóru í gær. Við ræðum stöðuna eftir einstaka sveitarfélögum, mögulega samstarfsmöguleika…

  50. #421 – Helgarvaktin með Hildi Björns og Ásdísi Kristjáns – Lokaspretturinn framundan

    · 1 h 37 min · S1 E421

    Hildur Björnsdóttir og Ásdís Kristjánsdóttir ræða lokasprettinn í sveitarstjórnarkosningunum, hvernig baráttan hefur þróast í Reykjavík og Kópavogi, hvað brennur helst á kjósendum, um hægri áherslurnar í…

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.