Podcasts · Ein Pæling

#472 Sæþór Benjamín Randalsson - Nýr leiðtogi Sósíalistaflokksins ekki token útlendingur

· 55 min

Episode #472 Sæþór Benjamín Randalsson - Nýr leiðtogi Sósíalistaflokksins ekki token útlendingur

0:00 55:12

Þórarinn ræðir við Sæþór Benjamín Randalsson, nýjan leiðtoga Sósíalistaflokksins, um stjórnmálin, woke-ið, húsnæðismál, mannréttindi, yfirtöku í Sósíalistaflokknum, peningamál Sósíalista, hvort að Sæþór sé Íslendingur og margt fleira. Sæþór Benjamín segist hafa lært mikið af Sólveigu Önnu undanfarin misseri en hann hefur einnig setið í stjórn Eflingar stéttarfélags undanfarin ár. Hann telur að auka þurfi grasrótarstarf innan Sósíalistaflokksins en hann vandar gömlu forystunni ekki kveðjurnar í þessu hlaðvarpi. Hann segir mikla leynd hafa ríkt yfir peningamálum Sósíalistaflokksins sem enn eigi eftir að greiða úr og að mikilvægt sé að flokkurinn hreinsi af sér allt sem við kemur woke-inu sem hann telur vera "dauðaköltsvinstri" sem sé engum til bóta. Þar að auki er rætt um mannréttindi og Kína en hann telur að Ísland geti lært margt af Kína sem hann segir að standi mun framar sínu upprunalandi sem eru Bandaríkin. - Afhverju vill Sanna Magdalena ekki tala við nýja forystu Sósíalista? - Afhverju er woke-ið dauðakölt? - Mun Sólveig Anna stíga inn á svið sveitarstjórnarmálanna? - Munu peningamál gömlu forystu Sósíalistaflokksins skýrast? Þessar spurningar eru ræddar í þessum þætti. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið

The episode on the publisher’s site (opens in a new tab)

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.