Podcasts · Ein Pæling

#453 Margrét Valdimarsdóttir - Þróun innflytjendamála á Íslandi

· 1 h 12 min

Episode #453 Margrét Valdimarsdóttir - Þróun innflytjendamála á Íslandi

0:00 1:12:17

Þórarinn ræðir við Margréti Valdimarsdóttur, afbrotafræðing og kennara við Háskóla Íslands. Í þættinum er rætt um afbrot innflytjenda og hælisleitenda sérstaklega og breytta sviðsmynd á Íslandi í þeim efnum. Sérstök áhersla er lögð á áhrif umræðunnar og hvernig óþol hefur aukist á Íslandi gagnvart menningartengdum breytingum. Fjallað er um spurningar sem vakna þegar hópar taka sig saman á borð við Skjöld Íslands en Margrét nefnir í viðtalinu að þetta sé keimlík þeirri þróun sem hefur átt sér á stað á Norðurlöndunum þar sem sífellt harkalegar er tekist á um umrædd mál. Margrét telur að tölulegar upplýsingar sem birtast þurfi að setja í samhengi við aðra tölfræði og að varhugavert sé þegar upplýsingum er beitt til þess að koma óorði á ákveðna hópa og mála upp dekkri mynd heldur en raunverulega er fyrir hendi. - Afhverju notaði Skjöldur Íslands járnkrossinn sem sitt merki? - Verður sænski veruleikinn eiga sér stað hér á landi? - Eru hægri hlaðvörp að ýta undir hræðsluáróður? Hér er þessum spurningum svarað. Til að fá þessa þætti án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið

The episode on the publisher’s site (opens in a new tab)

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.