#465 Sólveig Anna Jónsdóttir - Vinstrið verður að kljúfa sig frá woke-inu
· 1 h 13 min
Episode #465 Sólveig Anna Jónsdóttir - Vinstrið verður að kljúfa sig frá woke-inu
Þórarinn ræðir við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, um stjórnmál, rétttrúnað, kjarabaráttu, stöðu láglaunafólks og margt fleira. Umfjöllunin snýr meðal annars að undarlegum vendingum á vinstri væng stjórnmálanna, þar sem áherslan hefur oft færst yfir í táknræn mál á borð við „píkupólitík“ og kvennafrídaga. Sólveig leggur áherslu á að barátta láglaunafólks verði að byggjast á raunverulegum hagsmunum þeirra sjálfra, ekki forskrift millitekjuhópa sem nýti sér kjör hinna tekjulægstu undir merkjum „woke“ hugmyndafræði og persónufornafna. - Hvers vegna var Hallgrímur Helgason að „manspreada“ á Rauða borðinu? - Af hverju er svo oft talað niðrandi um stráka og „eitraða karlmennsku“? - Hvað þarf vinstrið að gera til að rétta úr kútnum? Svörin við þessum spurningum má finna hér.
Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.