Podcasts · Leisure · Society & Culture
Jón Ólafs á spjallinu
Jón Ólafsson
47 episodes
Jón Ólafs á spjallinu er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón ræðir við skemmtilegt og áhugavert fólk um lífið og tilveruna. Hann hefur um árabil verið með annan fótinn í fjölmiðlum meðfram tónlistinni og komið víða við. Fjölmiðlaferilinn hóf hann sem blaðamaður á Tímanum og þegar Rás 2 var stofnuð var Jón einn fjórmenninganna sem stýrðu fyrsta þættinum á stöðinni. Ekki leið á löngu þar til hann fór í sjónvarp og margir kannast við þættina Af fingrum fram sem svo breyttust í spjalltónleika í Salnum sem sér ekki fyrir endann á. Það er von Jóns að hlustendur verði margs vísari að lokinni hlustun.
Episodes
-
47.þáttur: Vilhjálmur Guðjónsson
Það er óhætt að segja að Vilhjálmi Guðjónssyni sé margt til lista lagt. Hann teflir 3-4 skákir á hverjum degi og þeysir þess á milli á mótorhjólinu út um allar koppagrundir. Vilhjálmur nýtur mikillar virðingar í…
-
46.þáttur: Sr. Davíð Þór Jónsson
Davíð Þór Jónsson varð fyrir einelti þegar hann flutti, ungur drengur, í Hafnarfjörðinn og því linnti ekki fyrr en hann skipti um lið og gerðist gerandi sjálfur. Hann fann hamingjuna í Flensborgarskóla þar sem hann…
-
45.þáttur: Karen Kjartansdóttir
Kjarnorkukonan, Karen Kjartansdóttir, vakti líklega fyrst athygli sem fréttamaður og í því starfi undi hún sér æði vel í áratug áður en hún spreytti sig í almannatengslum og fleiru. Hún var óhrædd að liðsinna umdeildum…
-
44.þáttur: Eyþór Gunnarsson
Eyþór Gunnarsson hefur í áratugi verið einn fremsti hljómborðsleikari þjóðarinnar. Hann vakti ungur athygli fyrir hæfileika sína og 16 ára gamall var hann farinn að leika á böllum með hljómsveitinni Tívolí. Þar…
-
43.þáttur: Lalli töframaður
Lalli töframaður er besti vinur barnanna og nýtir eigin lífsreynslu óspart þegar hann skemmtir þeim. Töfri töfri kallast sýning sem hann var að frumsýna í Tjarnarbíói og fjallar um ofurkraftana hans sem hann tengir við…
-
42.þáttur: Rán Flygenring
Rán Flygenring ólst upp á heimili arkitekta og fyrir vikið var hún síteiknandi sem barn og sér ekki fyrir endann á þessu. Hún ákvað að ferðast um heiminn og sjá hvort hún gæti framfleytt sér á meðan sem teiknari og…
-
41.þáttur: Margrét Valdimarsdóttir
Við höfum öll sögu að segja og Dr. Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur er ekki þar undanskilin. Æskuárin í Breiðholti voru erfið og hún varð vitni að ýmsu sem hún gat svo sannarlega nýtt sér síðar meir í…
-
40.þáttur: Jónatan Garðarsson
Jónatan Garðarsson hefur setið allt um kring hið íslenska tónlistarborð og slær hvergi slöku við. Hann hefur alla tíð alið manninn í Hafnarfirði og byrjaði ungur að safna hljómplötum og á þúsundir vinylplatna og…
-
39.þáttur: Óskar Hrafn Þorvaldsson
Óskar Hrafn er umtalaðasti þjálfari íslenskrar knattspyrnu þökk sé leiftrandi sóknarknattspyrnu sem meistaraflokkur KR í knattspyrnu býður upp á í hverjum leik. Sjálfur raðaði hann inn mörkunum í yngri flokkunum en var…
-
38.þáttur: Vigdís Hafliðadóttir
Sviðsljósið skín skærar og skærar á Vigdísi Hafliðadóttur sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir margvíslega hæfileika. Eftir að hafa klárað MH þreytti hún inntökupróf í leiklist en komst ekki inn og vill meina að…
-
37.þáttur: Gói
Guðjón Davíð Karlsson (Gói) var aðeins 5 ára gamall þegar hann ákvað að verða leikari og í annarri tilraun komst hann inn í Leiklistarskólann. Hann eyddi æsku- og unglingsárum í Þingholtunum og spilaði fótbolta með…
-
36.þáttur: Pétur Pétursson
Pétur Pétursson er einn besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar og var með eindæmum fundvís á netmöskva andstæðinganna. Hann lék sem atvinnumaður í Hollandi, Belgíu og á Spáni og lék og æfði með mörgum frábærum…
-
35.þáttur: Gunnar Árnason
Gunnar hefur verið í fremstu röð íslenskra hljóðmanna í áratugi og hefur byggt sér glæsilegt hljóðver í Vatnsendahverfi Kópavogs. Hann hljóðsetur m.a. kvikmyndir, sjónvarpsþætti og auglýsingar og er margverðlaunaður.…
-
34.þáttur: Brynhildur Björnsdóttir
Brynhildur Björnsdóttir er leikkona, söngkona, mannfræðingur, bókmenntafræðingur, dagskrárgerðarkona, feministi og kattahaldari svo fáein dæmi séu nefnd. Hún hefur svo sannarlega frá mörgu að segja enda reynt ýmislegt…
-
33.þáttur: Björn Stefánsson
Björn vakti fyrst athygli sem trommuleikari hljómsveitarinnar Mínus. Hann kom öllum á óvart þegar hann ákvað að skella sér í leiklistarnám í Danmörku árið 2009. Námið var hreint ekki auðvelt fyrir mann með…
-
32.þáttur: Helga Möller
Helga Möller hefur oft verið nefnd Diskódrottning Íslands. Samt voru þau Jóhann Helgason ekkert sérstakt áhugafólk um diskótónlist þegar þau sungu inn á fyrstu plötuna sem Þú & ég. Hún kemur til dyranna eins og hún er…
-
31.þáttur: Guðmundur Pétursson
Guðmundur varð landsfrægur í einu vetfangi þegar hann birtist landsmönnum í kosningasjónvarpinu aðeins 14 ára gamall. Honum líkaði ekkert sérstaklega við að vera kallaður undrabarn eða snillingur en víst er að…
-
30.þáttur: Guðrún Gunnarsdóttir
Guðrún hóf söngferil sinn sem meðlimur í MK-kvartettinum og í framhaldi tók svo vísnatónlistin við. Hún leitaði á vit ævintýranna í Noregi áður en hún sneri aftur heim. Við tóku ýmis söngverkefni og hún komst fljótt í…
-
29.þáttur: Andrea Jónsdóttir
Andrea hefur fjallað um tónlist á einn eða annan hátt í áratugi og oft nefnd Rokkamma Íslands. Þegar hún heyrði Be Bop A Lula í fyrsta sinn varð hún heltekin af rokktónlist. Hún ólst upp við Elvis, Bítlana og Hljóma og…
-
28.þáttur: Rúnar Freyr Gíslason
Um miðjan aldur var Rúnar Freyr búinn að brenna allar brýr að baki sér þrátt fyrir glæstan feril sem leikari og söngvari. Við tók bataferli sem mun standa yfir út lífið að hans sögn. Hann hefur heldur betur snúið við…
-
27.þáttur: Jóhann Hjörleifsson
Þið hafið heyrt oftar í Jóhanni Hjörleifssyni en ykkur grunar. Hann hefur trommað marga af helstu smellum undanfarinna ára m.a. með Sálinni hans Jóns míns. Hann var hálfgert undrabarn á sitt hljóðfæri og var farinn að…
-
26.þáttur: Jóhanna Vigdís Arnardóttir (Hansa)
Jóhanna Vigdís Arnardóttir fékk leiklistarbakteríuna tiltölulega seint og kom sjálfri sér á óvart með því að fljúga inn í Leiklistarskólann í fyrstu tilraun. Að loknu námi fékk hún samning í Borgarleikhúsinu og…
-
25.þáttur: Róbert Marshall
Flestir tengja Róbert Marshall við fréttir og stjórnmál og réttilega. Vestmannaeyingurinn víðlesni á þér þó fleiri hliðar og útivist hefur átt hug hans allan síðustu árin og varla er til sá fjallstoppur sem hann hefur…
-
24.þáttur: Sveinn Rúnar Sigurðsson
Enginn Íslendingur hefur átt jafn mörg lög í úrslitum Söngvakeppninnar og músíkalski læknirinn, Sveinn Rúnar Sigurðsson. Hann byrjaði að forrita aðeins 10 ára gamall og munaði minnstu að hann fengi ekki að útskrifast…
-
23.þáttur: Kristín Þóra Haraldsdóttir
Kristín Þóra er ein eftirsóttasta og besta leikkona landsins. Hún segist hafa tekið miklum framförum sem ökumaður á síðustu árum þó hún kunni ekki að bakka í stæði. Örmögnun í starfi og leik varð uppistaða í…
-
22.þáttur: Mist Rúnarsdóttir
Mist er goðsögn í heimi íslenskrar kvennaknattspyrnu og hefur verið óþreytandi við að leggja henni lið hvort heldur sem þjálfari eða íþróttafréttakona. Ferðalög eru hennar líf og yndi og fljótlega eftir stúdentspróf…
-
21.þáttur: Björgvin Páll Gústavsson
Björgvin Páll hefur verið besti handboltamarkvörður landsins um árabil og slær hvergi slöku við, 40 ára gamall. Æskan var erfið og áföllin mörg en hann vil meina að íþróttirnar hafi bjargað sér. Björgvin hefur látið…
-
20.þáttur: Máni Svavarsson
Hróður Mána hefur borist víða enda hefur tónlist hans í þáttunum um Latabæ heyrst í velflestum löndum þar sem rafmagn er að finna. Foreldrar hans, þau Svavar Gests og Elly Vilhjálms, löttu hann frekar en hvöttu þegar…
-
19.þáttur: Ellen Kristjánsdóttir
Ellen fæddist í Bandaríkjunum og talaði ekki stakt orð í íslensku þegar hún fluttist til Íslands. Hún hefur þurft að glíma við ansi mörg áföll á lífsleiðinni og meðal annars varð eitt slíkt uppsprettan að lagi sem hún…
-
18.þáttur: Róbert Þórhallsson
Það munaði minnstu að Húsvíkingurinn Róbert yrði trommuleikari Greifanna en örlögin ætluðu honum annað hlutverk. Eftir að hafa prófað að læra á hin ýmsu hljóðfæri tók hann ástfóstri við bassann og var óvenju fljótur að…
-
17.þáttur: Þórir Baldursson
Þórir leysti fyrst af með hljómsveit pabba síns aðeins 10 ára gamall. Hann gerði sig fljótt gildandi í íslenskum tónlistarheimi sem meðlimur Savanna tríósins auk þess sem hann samdi lög fyrir Dáta og Hljóma sem áttu…
-
16.þáttur: Halla Gunnarsdóttir
Halla Gunnarsdóttir er alþjóðastjórnmálafræðingur og kennari að mennt og hefur látið til sín taka á ýmsum sviðum. M.a. var hún aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar í tíð vinstri stjórnarinnar 2009–2013 og starfaði síðar…
-
15.þáttur: Egill Helgason
Egill Helgason er einn áhrifamesti fjölmiðlamaður landsins. Honum hugnaðist ekki framhaldsskólanámið og tók blaðamennsku fram yfir stúdentspróf. Við tók fjölbreyttur ferill þar sem flestir fjölmiðlar landsins koma við…
-
14.þáttur: Sif Atladóttir
Sif Atladóttir er í dag framkvæmdastjóri Leikmannasamtaka Íslands. Hún hefur fyrir löngu skráð nafn sitt á spjöld sögunnar sem ein okkar fremstu knattspyrnukvenna og á að baki glæsilegan feril á Íslandi, í Þýskalandi…
-
13.þáttur: Bogi Ágústsson
Bogi er dáðasti fréttamaður þjóðarinnar eftir áratuga starf hjá Ríkissjónvarpinu. Sagnfræði- og íslenskunám við Háskóla Íslands hefur reynst honum vel í starfi og þessa dagana alveg sérstaklega. Bogi er grjótharður…
-
12.þáttur: Védís Hervör Árnadóttir
Það sem hefur mótað Védísi Hervöru mest var að alast upp með heyrnarlausri ömmu sem var endalaust jaðarsett í samfélaginu og þurfti því heldur betur að hafa fyrir hlutunum. Védís fékk plötusamning aðeins 16 ára gömul…
-
11.þáttur: Egill Eðvarðsson
Egill er afkastamesti upptökustjóri íslenskrar sjónvarpssögu. Einnig hefur hann gert kvikmyndir, samið lög og ljóð auk þess að vera flinkur myndlistarmaður. Á langri ævi hefur hann upplifað margt og komist í tæri við…
-
10.þáttur: Magga Stína
Margrét Kristín Blöndal var í haldi ísraelska hersins í nokkra daga eftir að hafa siglt með skipinu The Conscience áleiðis til Gaza ásamt fleiri aðgerðarsinnum. Tilgangurinn var að færa hinu hrjáða Palestínufólki á…
-
9.þáttur: Óskar Bjarni Óskarsson
Óskar Bjarni ætlaði sér að verða leikari en það fór öðruvísi en ætlað var. Hann er svo mikill Valsmaður að það hálfa væri nóg. Hr. Valur væri réttnefni. Handboltinn á hug hans allan og hann þjálfar jöfnum höndum bestu…
-
8.þáttur: Björn Skúlason
Fyrsti forsetaherrann á Bessastöðum elskar að elda mat fyrir sína nánustu og brennur fyrir heilsueflingu. Sjálfur er hann afreksmaður í íþróttum og stundar crossfit af miklum móð. Björn Skúlason vildi skoða heiminn og…
-
7.þáttur: Ingi Garðar Erlendsson
Ingi Garðar hefur unnið eftirtektarvert starf sem stjórnandi Skólahljómsveitar Vesturbæjar og nágrennis; svo mjög að Reykjavíkurborg sá ástæðu til að útnefna hann Reykvíking ársins. Hann hefur ferðast um víða um heim…
-
6.þáttur: Brynhildur Guðjónsdóttir
Brynhildur Guðjónsdóttir hefur verið í fremstu röð íslenskra leikara alveg frá því hún birtist okkur sem Mimi í RENT árið 1999 þar sem hún sló eftirminnilega í gegn. Hún gegndi stöðu Borgarleikhússtjóra í nokkur ár og…
-
5.þáttur: Ása Berglind Hjálmarsdóttir
Ása Berglind er marghöm kona sem situr nú á Alþingi Íslendinga. Ferilsskráin er óvenju löng fyrir svona unga konu og ljóst að þarna fer engin meðalmanneskja. Hún klífur fjöll í kjólum og hefur bragðað flest þau sæföng…
-
4.þáttur: Ólafur Páll Gunnarsson
Ólafur Páll Gunnarsson, oftast kallaður Óli Palli, byrjaði sem tæknimaður hjá Ríkisútvarpinu en ekki leið á löngu þar til hann spreytti sig sem útvarpsmaður og sér ekki fyrir endann á því ævintýri. Þættir hans á Rás 2…
-
3.þáttur: Edda Björgvinsdóttir
Edda Björgvinsdóttir hefur verið ein ástsælasta leikkona þjóðarinnar um árabil. Hún hefur skapað marga eftirminnilega karaktera bæði á sviði, í útvarpi og ekki síst í sjónvarpi og kvikmyndum. Lífið er þó ekki alltaf…
-
2.þáttur: Ólafur Egilsson
Ólafur Egilsson er höfundur nokkurra vinsælustu sýninga síðustu ára og má þar nefna Elly, Þetta er Laddi og 9 líf sem dæmi. Það virðist hafa legið nokkuð beint við að listirnar tækju Ólaf í faðm sinn en hann ólst upp á…
-
1.þáttur: Halldóra Geirharðsdóttir
Halldóra Geirharðsdóttir hefur verið í eldlínu íslenskra sviðslista um árabil og vakti fyrst athygli sem framlínukona rokksveitarinnar Risaeðlunnar þar sem hún blés í saxófón og söng. En flestir þekkja hana þó úr…
More in Leisure
Ante Up Poker Magazine
Joe Scales
The X Button Video Game Podcast
X Button
Ninfriendo 64
X Button
The Minimalists
Joshua Fields Millburn, Ryan Nicodemus, T.K. Coleman
Critical Role
Critical Role
Jet Setting Wealth Advisory
David T. Yu
The Nat Jones Show
The Crown Network
Get Played
Headgum
Duck Call Room
Si Robertson & Justin Martin
Kinda Funny Gamescast: Video Game Podcast
Kinda Funny
Tales from the Stinky Dragon
Stinky Dragon
THIS CAR POD! with Doug DeMuro & Friends!
Doug DeMuro
Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.