Podcasts · Ein Pæling

#544 Ragnar Freyr Ingvarsson - Sjálfstætt starfandi læknar þjónusta tvöfalt fleiri en læknar á opinberum heilsugæslum

· 1 h 16 min

Episode #544 Ragnar Freyr Ingvarsson - Sjálfstætt starfandi læknar þjónusta tvöfalt fleiri en læknar á opinberum heilsugæslum

0:00 1:16:09

Þórarinn ræðir við Ragnar Frey Ingvarsson, formann Læknafélags Reykjavíkur, um stöðu heilbrigðismála á Íslandi. Ragnar telur opinberan heilbrigðisrekstur vera ósveigjanlegan og það sé ástæðan fyrir því að sama hversu miklu fé sé varið í þjónustuna sé sífellt aukin þörf á meiru. Hann segir opinberar heilsugæslustöðvar hitta tvöfalt færri sjúklinga en þær sem reknar eru í einkarekstri og því mikill afkastamunur. Í þættinum er rætt um DRG kerfið og hvernig megi auka afköst á Landspítala. Ragnar segir að einkareknar heilsugæslur og klíníkin gæti komið til með að auðvelda störf Landspítalans og að auka þurfi sjálfstæði lækna innan allra kerfa. Auk þessa er rætt um kjaramál hjúkrunarfræðinga, núning milli lækna og hjúkrunarfræðinga, hvaða áhrif það hefur að hjúkrunarfræðingar hafi betur upp úr því að sinna bókhaldsvinnu og hvort að útvista eigi fleiri verkefnum til einkarekinna aðila til þess að bæta störf bráðamóttökunnar og annarra deilda á Landspítala. - Afhverju afkasta einkareknar heilsugæslur tvöfalt meir heldur en þær sem reknar eru af hinu opinbera? - Eiga læknar að vera á hærri launum en hjúkrunarfræðingar? - Eru heilbrigðisstarfsmenn best til þess fallnir að sinna bókhaldsverkefnum spítalans? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur: 500g - 7.500 ISK 1 kg - 14.000/kg - Heimsent 2 Kg - 13.000/kg - Heimsent 4 kg - 12.000/kg - Heimsent Pantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me Happy Hydrate kóði: EINPAELING25

The episode on the publisher’s site (opens in a new tab)

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.