#493 Unnar Stefán Sigurðsson - Skólastjóri Háaleitisskóla við Ásbrú
· 1 h 15 min
Episode #493 Unnar Stefán Sigurðsson - Skólastjóri Háaleitisskóla við Ásbrú
Þórarinn ræðir við Unnar Stefán Sigurðsson, skólastjóra Háaleitisskóla í Reykjanesbæ. Unnar hefur getið sér gott orðspor fyrir sérstaklega góðan árangur við skólann sem staðsettur er á Ásbrú. Í þættinum ræðir hann áskoranir sem fylgir því að taka á móti fólki með ólíkan menningarbakgrunn og hvaða undirstöður þurfa að vera fyrir hendi til þess að taka vel á móti fólki sem hingað leitar. Unnar segir að móttökuskólinn Friðheimar hafi verið grunnur þeirrar velgengni sem skólinn hefur notið. Hann segir stofnun hans hafi komið ró á skólann og að heilt yfir hafi það verið betra fyrir kennara, foreldra og ekki síst nemendur. Unnar Stefán hyggst nú fara í sveitarstjórnmálin fyrir Sjálfstæðisflokkinn en hann vill koma skóla- og íþróttamálum betur á dagskrá. Hann segir að Reykjanesbær hafi áður verið íþróttabær en að það starf hafi á undanförnum árum dalað. Einnig er rætt um samskipti við foreldra, skólaforðun, hindranir stjórnvalda, virðingu fyrir skoðunum, skoðanamunur kynslóðanna og margt fleira. - Hvernig er best að taka á móti börnum með ólíkan menningarbakgrunn? - Afhverju draga stjórnvöld lappirnar í því að auka íþróttastarf? - Eru foreldrarnir vandamálið? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið Drifa.is Palssonfasteignasala.is Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur (kynningartilboð): 500g - 7.500 ISK 1 kg - 14.000/kg - Heimsent 2 Kg - 13.000/kg - Heimsent 4 kg - 12.000/kg - Heimsent Pantið á Hrafnadalur@proton.me
Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.