#531 Jón Gnarr - Meðferðin á Guðbrandi var mannvonska
· 1 h 31 min
Episode #531 Jón Gnarr - Meðferðin á Guðbrandi var mannvonska
Þórarinn ræðir við Jón Gnarr, grínista og starfandi Alþingismann fyrir Viðreisn. Jón telur neyðarástand ríkja í málefnum drengja og að mikilvægt sé að grípa í taumana. Það kemur honum spánskt fyrir sjónir að mannréttindabarátta hafi ekki látið þessi mál sig varða og að vandamál drengja sé jafnvel rætt með hjákátlegum tón. Hann telur að meðferðin á Guðbrandi Einarssyni, fyrrum alþingismanni fyrir sama flokk, hafi verið mannvonska en Guðbrandur sagði af sér eftir að hafa gerst uppvís af því að íhuga það að kaupa vændi. Sömuleiðis gagnrýnir hann meðferð ríkisstjórnarinnar á málefni Ásthildar Lóu en hún sagði af sér sem barnamálaráðherra eftir röð atvika sem sum áttu sér fjörutíu ára sögu. Hann segir mannréttindabaráttu er varðar vændiskaup byggða á ótta sem að eyðileggur fyrir málstað sem annars gæti leitt til jákvæðrar niðurstöðu. - Er mannréttindabarátta í dag byggð á ótta? - Var meðferðin á Guðbrandi mannvonska? - Munu afskiptir drengir hefna sín á samfélaginu? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið Palssonfasteignasala.is Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur (kynningartilboð): 500g - 7.500 ISK 1 kg - 14.000/kg - Heimsent 2 Kg - 13.000/kg - Heimsent 4 kg - 12.000/kg - Heimsent Pantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me
Links in the notes 2
Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.