#541 Hilmar Veigar Pétursson - Hugverkaiðnaðurinn á Íslandi er takmarkalaus
· 1 h 29 min
Episode #541 Hilmar Veigar Pétursson - Hugverkaiðnaðurinn á Íslandi er takmarkalaus
Þórarinn ræðir við Hilmar Veigar Pétursson, forstjóra CCP. Hilmar hefur áhyggjur af nýsköpunarumhverfi á Íslandi en telur samt sem áður að með einföldum ákvörðunum sé hægt að margfalda afköst hans. Hann segir að með núverandi ríkisstjórn hafi áherslurnar beyst sem hafi haft áhrif á menningu innan iðnaðarins. Hann segir að með lítilli breytingu á fyrirkomulagi lífeyrissjóða væri hægt að skapa nýja lífæð fyrir nýsköpunarfyrirtæki sem að með réttum hvötum sé í raun takmarkalaus. Menningin innan geirans hafi dalað og að það hafi meiri áhrif en margan grunar og að "stemningin" innan geirans hafi mikil áhrif á það hvort að hann blómstri eður ei. Einnig er rætt um Eve-online en það er að sjálfsögðu langstærsta afurð CCP. Rætt er um leikinn í samhengi við hagkerfi heimsins og hvaða skörun er á milli hagkerfisins í leiknum og hagkerfisins á Íslandi. Að lokum er rætt um orkumál, bæði hérlendis en einnig í Evrópu. Hilmar segir að orka sé mikilvæg stoð í nýjum heimi gervigreindar og að hægt væri að nota innviði álveranna í gagnaver en það gæti einnig verið til hagsbóta í öðrum kimum heimsins eins og í Afríku. - Hvernig geta orkumál valdið samfélagslegu harakiri? - Afhverju er lífeyrissjóðakerfið að mestu leyti að fjármagna nýtækniiðnað í Bandaríkjunum? - Hver eru sameiginleg einkenni hagkerfa Eve-online og Íslands? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur: 500g - 7.500 ISK 1 kg - 14.000/kg - Heimsent 2 Kg - 13.000/kg - Heimsent 4 kg - 12.000/kg - Heimsent Pantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me Happy Hydrate kóði: EINPAELING25
Links in the notes 2
Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.