Podcasts · Heimskviður

62 | Valdarán í Mjanmar og spilling í Bangladess

· 30 min · Episode 41

Episode 62 | Valdarán í Mjanmar og spilling í Bangladess

0:00 30:05

Í Heimskviðum vikunnar förum við til Bangladess og Mjanmar, nágrannaríkja sem eiga sér ólíka sögu. Og sögur vikunnar frá þessum ríkjum eru einnig ólíkar.

Við greinum frá nýlegri uppljóstrun Al-Jazeera fréttastofunnar, sem leiddi í ljós samvinnu glæpasamtaka við öryggissveitir ríkisins í Bangladess. Aðalleikarar þessa sögu eru auk forsætisráðherra landsins fjórir bræður, sem eru ýmist hátt settir embættismenn eða ótýndir glæpamenn.

Aðfaranótt mánudags framdi herinn í Mjanmar valdarán. Þann fyrsta febrúar stóð til að mjanmarska þingið yrði sett, en kosningar fóru fram í landinu í nóvember þar sem NLD-flokkurinn, eða Lýðræðislega þjóðardeildin, hlaut yfirburða kosningu eða 80% prósent atkvæði. Í skjóli nætur handtóku hermenn mjanmarska hersins helstu þingmenn og leiðtoga flokksins. Þar á meðal Aung San Suu Kyi, stofnanda flokksins og valdamestu konu landsins.

Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

The episode on the publisher’s site (opens in a new tab)

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.