17 | Morðið á Möltu, þinkosningar í Bretlandi og endalok The Simpsons
· 49 min · Episode 7
Episode 17 | Morðið á Möltu, þinkosningar í Bretlandi og endalok The Simpsons
Í sautjánda þætti Heimskviðna er fjallað um morðið á Daphne Galizia, blaðakonu á Möltu, árið 2017. Dagný Hulda Erlendsdóttir ræðir við vinkonu Galizia, Dóru Blöndal Mizzi og Renete Schroeder, framkvæmdastjóra Evrópusamtaka blaðamanna. Rannsókn málsins hafði lítið miðað áfram þangað til leigubílstjóri var handtekinn á flugvelli á Möltu um miðjan síðasta mánuð. Hann var tengiliður milli leigumorðingjanna sem myrtu blaðakonuna og þeirra sem vildu hana feiga.
Þingkosningar fara fram í Bretlandi í næstu viku, þann 12. desember. Vanalega fara kosningar fram á fimm ára fresti í Bretlandi, en líkt og alþjóð veit hefur ýmislegt gengið á í breskum stjórnmálum undanfarin ár. Brexit er sem fyrr í forgrunni, en það er einnig önnur mál sem eru kjósendum hugleikin. Guðmundur Björn segir frá.
Í vikunni var ýjað að því að þættirnir um Simpson fjölskylduna renni bráðum sitt skeið á enda, þrjátíu þáttaröðum frá því að fyrsti þátturinn var sýndur. Aðdáendur þáttanna eru miður sín, eða hvað? Einn af eldheitustu aðdáendum þáttanna segir að þetta sé komið gott og að í raun hefði átt að loka Simpson-sjoppunni fyrir löngu. Hvernig ætli standi á því? Birta kannaði málið.
Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.
Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.