Sumarútgáfa: Mið-Austurlönd
· 45 min · Episode 27
Episode Sumarútgáfa: Mið-Austurlönd
Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í áttunda og síðasta sumarþættinum er Mið-Austurlönd.
Fjallað er um dauða Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtoga hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við Íslamskt ríki, eða ISIS. Samtökin eru ekki svipur hjá sjón í dag miðað við það sem áður var. Langur vegur er þó frá því að samtökin leggi upp laupanna.
Þá voru tveir af hæst settu mönnum konungsfjölskyldunnar í Sádi-Arabíu voru handteknir í vetur, en. báðir eiga þeir tilkall til krúnunnar samkvæmt hefðum og annar þeirra er bróðir sjálfs Salmans konungs.
Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.
Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.