Podcasts · Heimskviður

73 | Fyrstu 100 dagar Bidens og þjóðarmorðið á Armenum

· 31 min · Episode 52

Episode 73 | Fyrstu 100 dagar Bidens og þjóðarmorðið á Armenum

0:00 30:44

Í Heimskviðum vikunnar höldum við til Tyrklands, Armeníu og Bandaríkjanna.

Joe Biden Bandaríkjaforseti er fyrirferðamikill í Heimskviðum þessa vikuna. Síðustu vikuna hafa verið skrifaðar ófáar fréttir af því að títtnefndur Biden, breytti orðalagi forvera sinna í starfi og kalla framgöngu Tyrkja gegn Armenum árið 1915 þjóðarmorð. Á laugardaginn kom boðuð yfirlýsing frá Bandaríkjaforseta þar sem segir meðal annars að þennan dag ár hvert minnumst við þeirra sem létust í þjóðarmorðum á Armenum á tímum Ottómana. ?Við heitum þess að reyna að gera allt til að koma í veg fyrir að svona grimmdarverk endurtaki sig,? sagði Biden. En hvaða atburður er þetta sem Biden minnist á, þjóðarmorð á Armenum á tímum Ottómana?

Eitt hundrað dagar voru á fimmtudag frá því að Joe Biden tók við embætti Bandaríkjaforseta. Stjórnmálaskýrendur segja gjarna að þessir fyrstu mánuðir séu mikilvægasti tími hverrar embættistíðar. Hvernig hefur tekist til, Bogi Ágústsson reynir að svara þeirri spurningu og nýtur liðsinni Sigríðar Rutar Júlíusdóttur, hæstaréttalögmanns, en hún stundaði framhaldsnám í Bandaríkjunum og fylgist gjörla með stjórnmálum vestra.

Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

The episode on the publisher’s site (opens in a new tab)

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.