27 | Julian Assange, átök á Indlandi og ógnir á Norður-Atlantshafi
· 48 min · Episode 10
Episode 27 | Julian Assange, átök á Indlandi og ógnir á Norður-Atlantshafi
Í tuttugasta og sjöunda þætti Heimskviðna er fjallað um Julian Assange, stofnanda Wikileaks, og framsalskröfu Bandaríkjanna á hendur honum. Assange heldur nú uppi vörnum í Bretlandi, en bresk stjórnvöld hafa fallist á framsalskröfu Bandaríkjanna. Kristinn Hranfsson, ritstjóri Wikileaks, ræðir um réttarhöldin og hvernig niðurstaða þeirra gæti haft áhrif á framtíð blaðamennsku og tjáningarfrelsis í heiminum. Guðmundur Björn fjallar um málið.
Mannskæðar óeirðir hafa verið í Delí, höfuðborg Indlands, undanfarnar vikur vegna nýrra laga sem gera ólöglegum innflytjendum kleift að fá ríkisborgararétt - ef þeir eru ekki múslimar. Þeir hafa lengi verið jaðarsettir í landinu. Lagasetningin tengist líka sögulegum flótta múslima frá nágrannaríkjunum og baráttu núverandi stjórnvalda til að halda löndum. Hallgrímur Indriðason skoðar málið nánar.
Norður Atlantshaf hefur ætíð haft mikla hernaðarlega þýðingu. Á tímum kalda stríðsins óttuðust þjóðir Atlantshafsbandalagsins mjög að sovéski flotinn réðist á flutningaleiðir frá Bandaríkjunum til Evrópu. Þetta var ein höfuðástæða viðveru bandaríska flotans á Íslandi. Bogi Ágústsson ræddi við bandaríska flota- og herfræðinginn Magnus Nordenman um breytta ógn á Norður-Atlantshafinu.
Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.
Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.