Podcasts · Heimskviður

66 | Bin Salman, morðið á Khashoggi og eldsvoðinn í Grenfell

· 32 min · Episode 45

Episode 66 | Bin Salman, morðið á Khashoggi og eldsvoðinn í Grenfell

0:00 32:13

Í Heimskviðum vikunnar höldum við Tyrklands, Sádí-Arabíu og Lundúna.

Tæp tvo og hálft ár eru síðan Sádí-arabíski blaðamaðurinn Jamal Khashoggi var myrtur í sendiráði Sádí-Arabíu í Istanbúl í Tyrklandi. Khashoggi hafði talað opinskátt fyrir opnara og gagnsærra stjórnkerfi í heimalandinu, og gagnrýnt krónprinsinn Mohammed bin Salman fyrir spillingu og mannréttindabrot. Prinsinn hefur ítrekað þvertekið fyrir að hafa skipulagt, eða vitað, um morðið á Khashoggi. Það verður að teljast ólíklegt að að hæstráðandi landsins hafi ekkert vitað, og því eru bandarísk stjórnvöld sammála. Þetta kemur fram í skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar CIA um morðið á Khashoggi, sem var gerð opinber á dögunum. En hvað hún felur hún í sér? Munu Bandaríkin geta beita refsiaðgerðum gegn einum mikilvægasta bandamanni sínum í Mið-Austurlöndum? Guðmundur Björn kynnti sér málið.

Flestum er eldsvoðinn í Grenfell fjölbýlishúsinu í Lundúnum sumarið 2017 enn í fersku minni en sjötíu og tvö létust þegar blokkin varð alelda á skömmum tíma. Tæpum fjórum árum eftir brunann búa um 650 þúsund Lundúnabúar búa enn í húsnæði með samskonar klæðningu og fuðraði upp í eldsvoðanum. Örvænting hefur gripið um sig í stað reiði, því þrátt fyrir fögur fyrirheit stjórnvalda hefur lítið verið gert fyrir þennan hóp. Birta Björnsdóttir fjallan um eldsvoðann í Grenfell og ræðir við Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara RÚV í Lundúnum.

Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

The episode on the publisher’s site (opens in a new tab)

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them. Explicit shows are for adult profiles only, and children’s profiles hear only children’s shows. More about this list.