# #68. - Mega blaðamenn brjótast inn á heimili fólks?

An episode of [Spursmál](https://invisiblenetwork.ai/podcast/1718968828), 7 Mar 2025, 1 h 25 min.

Audio: https://anchor.fm/s/f18f34b8/podcast/play/99512153/https%3A%2F%2Fd3ctxlq1ktw2nl.cloudfront.net%2Fstaging%2F2025-2-7%2F396144919-44100-2-da9d9fcccae46.mp3

Hvar liggja mörk friðhelgi einka­lífs­ins og hvar tek­ur rétt­ur al­menn­ings til upp­lýs­inga­gjaf­ar við? Eva Hauks­dótt­ir, lögmaður Páls Stein­gríms­son­ar ræðir það í Spurs­mál­um. Og margt fleira er á dag­skrá. Rósa Guðbjarts­dótt­ir, alþing­ismaður og fyrr­um bæj­ar­stjóri í Hafnar­f­irði ræðir frétt­ir vik­unn­ar ásamt Birni Brynj­úlfi Björns­syni, fram­kvæmda­stjóra Viðskiptaráðs. Rósa hafði aðkomu að gerð kjara­samn­inga við kenn­ara og í þætt­in­um verður hún spurð út í meinta aðkomu Ásthild­ar Lóu Þór­halls­dótt­ur, mennta­málaráðherra að gerð samn­ing­anna og eins fram­göngu Heiðu Bjarg­ar Hilm­is­dótt­ur, for­manns Sam­taka ís­lenskra sveit­ar­fé­laga. Sú síðast­nefnda ein­angraði sig frá allri stjórn sam­tak­anna þegar hún sagðist reiðubú­in fyr­ir hönd Reykja­vík­ur að ganga til samn­inga við kenn­ara, jafn­vel þótt öll önn­ur sveit­ar­fé­lög lands­ins væru ekki til í að bjóða upp í þann dans. Björn Brynj­ólf­ur kynnti fyrr í vik­unni ásamt sam­starfs­fólki sínu skýrslu um fjöl­miðlamarkaðinn og það hvernig Rík­is­út­varpið gín yfir öðrum fyr­ir­tækj­um á þeim markaði. Þá verður tali einnig vikið að nýj­um hagræðing­ar­til­lög­um sem rík­is­stjórn­in er kom­in með á sitt borð. Þar er stefnt að því að spara 70 millj­arða á næstu fimm árum. Það eru inn­an við 1% aðhaldsaðgerðir á hvert ár. Í þætt­in­um er einnig rætt við Álf­hildi Leifs­dótt­ur, sveit­ar­stjórn­ar­konu í Skagaf­irði og framá­konu í Vinstri­hreyf­ing­unni grænu fram­boði. Hún er afar ósátt við þær fyr­ir­ætlan­ir meiri­hlut­ans í sveit­ar­fé­lag­inu að selja tvö af tíu fé­lags­heim­il­um héraðsins. Hún ræðir þau mál og stöðu VG sem virðist rúst­ir ein­ar eft­ir það af­hroð sem flokk­ur­inn galt í síðustu alþing­is­kosn­ing­um.

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them.
