# #69. - Er Trump með plan? Er heimsstyrjöld í aðsigi?

An episode of [Spursmál](https://invisiblenetwork.ai/podcast/1718968828), 14 Mar 2025, 1 h 33 min.

Audio: https://anchor.fm/s/f18f34b8/podcast/play/99857136/https%3A%2F%2Fd3ctxlq1ktw2nl.cloudfront.net%2Fstaging%2F2025-2-18%2F396799751-44100-2-cc00b8b75084a.mp3

Á sama tíma og Don­ald Trump legg­ur tolla á ná­granna­ríki Banda­ríkj­anna, Kína og Evr­ópu­sam­bandið reyn­ir hann að toga Úkraínu­menn og Rússa að samn­inga­borðinu. Hann kall­ar eft­ir friði í Evr­ópu. Er Trump í rugl­inu? Tryggvi Hjalta­son nam hernaðar- og varn­ar­mála­fræði í Banda­ríkj­un­um og þá lauk hann einnig þriggja ára liðsfor­ingjaþjálf­un hjá Banda­ríkja­her. Hann hef­ur teiknað upp ólík­ar sviðsmynd­ir um það hvað Trump hygg­ist fyr­ir og hvaða ár­angri hann hef­ur í hyggju að ná þegar kem­ur að mál­efn­um Úkraínu, NATO en ekki síst bar­átt­unni um hernaðarlega yf­ir­burði á heims­sviðnu. Þar gera Kín­verj­ar sig sí­fellt lík­legri til þess að skáka Banda­ríkj­un­um. Dr. Ragn­ar Árna­son, pró­fess­or emer­it­us í hag­fræði við Há­skóla Íslands hef­ur að und­an­förnu fjallað ít­ar­lega um kosti og galla þess að Ísland gengi í Evr­ópu­sam­bandið. Hef­ur hann t.d. bent á að það sé tómt mál að tala um eina til­tekna hús­næðis­vexti á evru­svæðinu. Þar muni miklu milli ólíkra hag­kerfa. Hef­ur hann tek­ist nokkuð hart á við Dag B. Eggerts­son um þessi mál. Var þeim báðum boðið í þátt­inn, bæði í þess­ari viku og hinni fyrri og þáði Ragn­ar boðið. Í frétt­um vik­unn­ar er rætt við tvo alþing­is­menn sem bera sitt­hvorn heiðurstitil­inn. Jón­ína Björk Óskars­dótt­ir er elsti nú­ver­andi þingmaður­inn en hún sit­ur á þingi fyr­ir Flokk fólks­ins. Ingvar Þórodds­son er þingmaður Viðreisn­ar og er hann yngst­ur þing­manna sem nú sitja.

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them.
