# #78. - Ákall um afsagnir í æðstu stöðum

An episode of [Spursmál](https://invisiblenetwork.ai/podcast/1718968828), 23 May 2025, 1 h 12 min.

Audio: https://anchor.fm/s/f18f34b8/podcast/play/103101290/https%3A%2F%2Fd3ctxlq1ktw2nl.cloudfront.net%2Fstaging%2F2025-4-23%2F400869128-44100-2-99d832f25935a.mp3

Úlfar Lúðvíks­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri á Suður­nesj­um, tek­ur enga fanga í ít­ar­legu viðtali í Spurs­mál­um. Seg­ir hann rík­is­lög­reglu­stjóra og ráðuneyt­is­stjóra dóms­málaráðuneyt­is­ins hafa brugðist skyld­um sín­um þegar kem­ur að vernd landa­mæra rík­is­ins. Í þætt­in­um fer Úlfar yfir það hvernig starfs­lok hans báru að og hvaða ástæður hann tel­ur að búi að baki þeirri ákvörðun dóms­málaráðherra. Hann seg­ir und­an­bragðalaust að hon­um hafi verið sýnd­ur reisupass­inn. Í þætt­in­um mæta stöll­urn­ar Krist­ín Gunn­ars­dótt­ir og Ólöf Skafta­dótt­ir en þær halda úti hinu geysi­vin­sæla hlaðvarpi, Komið gott. Á miðviku­dags­kvöld stefndu þær 450 gest­um í gamla Aust­ur­bæj­ar­bíó og héldu þar uppi stuði langt fram eft­ir. Þær ræða frétt­ir vik­unn­ar sem eru marg­ar og mis­mun­andi. Allt frá nýrri mæl­ingu á fylgi stjórn­mála­flokk­anna til hnífstungu­árás­ar í Úlfarsár­dal.

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them.
