# #142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu

An episode of [Spursmál](https://invisiblenetwork.ai/podcast/1718968828), 4 Sep 2026, 1 h 43 min.

Audio: https://anchor.fm/s/f18f34b8/podcast/play/125201720/https%3A%2F%2Fd3ctxlq1ktw2nl.cloudfront.net%2Fstaging%2F2026-8-4%2F431181116-44100-2-8e22b12534363.mp3

Grípa þarf til enn frekari aðhaldsaðgerða hjá Reykjavíkurborg að sögn Hildar Björnsdóttur borgarstjóra sem er gestur Spursmála að þessu sinni. Hallareksturinn nam 4,6 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi. Í liðinni viku var greint frá umtalsverðum skipulagsbreytingum hjá borginni sem spara eiga um 900 milljónir króna á ársgrundvelli. Fer Hildur yfir þessar aðgerðir í þættinum og hvernig hún hyggist á sama tíma standa vörð um grunnrekstur borgarinnar. Í fréttum vikunnar er rætt við þá Magnús Jóhann Ragnarsson píanóleikara og Örn Arnarson, fjölmiðlarýni og hagfræðing sem starfar á Viðskiptablaðinu. Þeir ræða meðal annars miklar væringar á fjölmiðlamarkaði sem birtast í því að kvöldfréttir Sýnar heyra nú sögunni til. Í síðasta hluta þáttarins er rætt við dr. Hannes Hólmstein Gissurarson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands. Hann rýnir í niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar um liðna helgi og hvað úrslitin þýða fyrir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur.

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them.
