# Bókaspjall: Við verðum að tala um Xi

An episode of [Spursmál](https://invisiblenetwork.ai/podcast/1718968828), 12 Nov 2025, 1 h 08 min.

Audio: https://anchor.fm/s/f18f34b8/podcast/play/111011435/https%3A%2F%2Fd3ctxlq1ktw2nl.cloudfront.net%2Fstaging%2F2025-10-11%2F412253960-44100-2-b2d4eb781d458.mp3

Hvert setur kínverski drekinn stefnuna? Er hætt við að Xi Jinping muni fyrirskipa næstöflugasta her í heimi að ráðast inn í Taívan? Þetta bar á góma á vettvangi Bókaklúbbs Spursmála. Í síðustu viku stóð klúbburinn fyrir samtali um bók Michaels Dillon, We need to talk about Xi, en hún var til umfjöllunar í októbermánuði. Þátttaka á fundinum var afar góð og voru um 80 gestir á Vinnustofu Kjarvals meðan á umræðunni stóð. Þar mættu til leiks þeir Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi utanríkisráðherra og Magnús Björnsson, einn helsti sérfræðingur Íslands í málefnum Kína. Fór umræðan vítt og breitt og beindist meðal annars að því hvaða stöðu kínverska stórveldið hyggst taka sér á heimssviðinu á komandi áratugum. Telur Magnús það afar ólíklegt að Kínverjar láti til skarar skríða. Ráði þar kalt hagsmunamat en meðal annars þær ófarir sem Rússar hafa upplifað í innrásarstríði sínu í Úkraínu.

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them.
