# #463 Konráð Guðjónsson - Lækkunarferli stýrivaxta lokið í bili

An episode of [Ein Pæling](https://invisiblenetwork.ai/podcast/1485558696), 3 Sep 2025, 1 h 05 min.

Audio: https://dts.podtrac.com/redirect.mp3/api.spreaker.com/download/episode/67611884/konr_gu_j_nsson_g_st_2025_audio_pub.mp3

Þórarinn ræðir við Konráð Guðjónsson, fyrrum aðstoðarmann utanríkisráðherra og fjármálaráðherra sem og fyrrverandi efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar síðustu, um stefnu og stöðu efnahagsmála á Íslandi nú þegar lækkunarferli stýrivaxta er komin á bið. Rætt er um áhrif húsnæðismála á verðbólguna, kjaramál og krónutöluhækkanir, framleiðni, styttingu vinnuvikunnar, stefnu ríkisstjórnarinnar, kulnun og margt fleira. Konráð telur fílinn í herberginu vera launahækkanir og að of sjaldan sé rætt um þær í samhengi við stýrivexti. Hann telur launaskrið hafa kynt undir þeirri verðbólgu sem sést í dag og að ekki sé fyrirséð að hún muni koma til með að hjaðna á næstunni. - Eru launahækkanir bleiki fíllinn í herberginu? - Hvaða áhrif hefur kulnun á vinnumarkaðinn? - Hvaða áhrif hefur lóðaverð á húsnæðisverð? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them.
