# #468 Sigurjón Þórðarson - Strandveiðar, stríð, hælisleitendur og kulnun

An episode of [Ein Pæling](https://invisiblenetwork.ai/podcast/1485558696), 15 Sep 2025, 1 h 05 min.

Audio: https://dts.podtrac.com/redirect.mp3/api.spreaker.com/download/episode/67764408/sigurj_n_r_arson_audio_pub.mp3

Þórarinn ræðir við Sigurjón Þórðarson, alþingismann Flokks fólksins, um ýmis mál sem snúa að stjórnmálum á Íslandi Fyrst er rætt um strandveiðar en Sigurjón hefur oft verið nefndur í samræðum um þau mál vegna báts sem hann á og hann hefur nýtt til strandveiða. Þórarinn spyr hvort að hann sé ekki að ganga eigin erinda með því að auka strandveiðikvótann og tekist er á um það. Sigurjóni þykir vegið að tungumálinu í íslensku samfélagi í dag og segir hann nauðsynlegt að þeir sem sinni þjónustu á Íslandi tali íslensku. Hann segir að leigubílamálin séu komin út í óefni og að einn angi þeirra sé tungumálið en ekki síður ofbeldismál sem myndbönd hafa náðst af undanfarið þar sem erlendir leigubílstjórar hafa hagað sér misjafnlega. Þar að auki er rætt um hælisleitendamálin, stríðið fyrir botni Miðjarðarhafs, hvort að Ísland eigi að taka á móti fleiri Palestínumönnum, kulnun, menntamál og margt fleira. - Var Sigurjón að moka undir eigin rass í strandveiðimálinu? - Á að banna leigubílstjóra sem tala ekki íslensku? - Á Ísland að taka á móti flóttafólki frá Palestínu? - Hvað er kulnun í starfi? - Eigum við að breyta okkar gildum til að komast til móts við fólk sem hingar leitar? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them.
