# #428 Gunnar Úlfarsson - Svartir sauðir þrífast best á opinberum vinnumarkaði

An episode of [Ein Pæling](https://invisiblenetwork.ai/podcast/1485558696), 18 Jun 2025, 1 h 09 min.

Audio: https://dts.podtrac.com/redirect.mp3/api.spreaker.com/download/episode/66577807/gunnar_lfarsson_ma_2025_audio.mp3

Þórarinn ræðir við Gunnar Úlfarsson, hagfræðing hjá Viðskiptaráði um svarta sauði á opinberum vinnumarkaði og húsnæðismál. Fjallað erum áhrif þess á vinnustaðamenningu að yfirmenn hafi fá sem engin bjargráð til þess að losa sig við lélega starfsmenn. Rætt er um afleiddar afleiðingar á vinnuþrek annarra starfsmanna og hvernig til langs tíma þetta fyrirkomulag mun koma til með að rýra þjónustu hjá hinu opinbera. Í síðari hluta hlaðvarpsins er rætt um húsnæðismarkaðinn með tilliti til þess hversu mikið af framboði húsnæðis fer utan almenns markaðs. Þetta hefur áhrif á fasteignaverð og framboðskosti þar sem bjögun hins opinbera minnkar fyrirsjáanleika sem hefur áhrif á vilja verktaka til þess að ráðast í verkefni. - Afhverju eru svartir sauðir ekki reknir hjá hinu opinbera? - Minnkar Reykjavíkurborg húsnæðisframboð með niðurgreiddu húsnæði? - Hvaða áhrif hefur bjögun á húsnæðismarkaði á fjölskyldumynstur? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þessa þætti án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón

Shows are listed from Apple Podcasts' charts and directory, and Podcast Index where it is used. Every show and episode belongs to its publisher and plays from the publisher's own feed; this site hosts none of them.
